Tómar mjólkurfernur og allskonar rusl er til sýnis á listasýningunni Garbage í Stokkhólmi.
Eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna er rusl viðfangsefni hennar. „Við erum þjóðfræðingar og höfum áhuga á hvernig fólk lifir. OKkur fannst áhugavert að skoða lifnaðarhætti út frá rusli,“ segir Christina Matsson, einn af stjórnendum Nordiska safnsins í miðbæ Stokkhólms.
„Við viljum sýna fólki að fyrr á öldum var nær ekkert talið sem rusl og fólk nýtti allt miklu betur,“ segir Lena Landerberg, einn af stjórnendum sýningarinnar.