Gekk fram af bryggju útaf Facebook

Stórhættuleg iðja

Við vitum öll að það er stórhættulegt að senda sms undir stýri en nú hefur komið í ljós að það getur einnig verið hættulegt að senda skilaboð labbandi.

Í nýrri rannsókn frá háskólanum í Queensland í Ástralíu voru 26 sjálfboðaliðar látnir ganga níu metra í beinni línu. Fyrst gengu þeir án truflana, í annað skiptið lásu þeir skilaboð og í þriðja skiptið voru þeir að skrifa skilaboð.

Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að sjálfboðaliðarnir fóru mest útaf línunni á meðan þeir skrifuðu skilaboð. Einnig gengu þeir hægar og með höfuð og háls í stífri stöðu. Jafnframt hafði skilaboðasendingarnar áhrif á jafnvægi sjálfboðaliðanna.

Niðurstöðurnar passa við atburði sem hafa gerst í Ástralíu undanfarnar vikur, en í síðasta mánuði gekk ferðamaður fram af bryggju í Melbourne á meðan hún var að nota Facebook  í símanum. Sem betur fer var henni bjargað fljótt.

Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa einnig varað við þessu en samkvæmt rannsókn sem gerð var í Ohio höfðu slys sem tengd voru við farsímanotkun og göngu tvöfaldast á árunum 2005 til 2010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant