Beyoncé og Solange dönsuðu saman

Systurnar skemmtu sér vel við dansinn.
Systurnar skemmtu sér vel við dansinn.

Hjónakornin Beyoncé Knowles og Jay-Z gerðu allt vitlaust á Coachella-hátíðinni á laugardaginn þegar þau mættu óvænt á svið.

Solange Knowles kynnti Beyoncé á svið, öllum að óvörum, og dönsuðu þær systur saman við lagið „Losing you“

Nokkrum klukkutímum seinna mætti Jay-Z á svið og hjálpaði rapparanum Nas að flytja lögin „Dead Presidents II“ og „Where I'm from“. Þeir félagar elduðu grátt silfur hér áður en grófu stríðsöxina árið 2005.

Pharrell Williams gat að sjálfsögðu ekki verið minni maður og staðið einn á sviði en hann bauð Gwen Stefani að taka lagið með sér og sungu þau saman einn af smellum hennar, „Hollaback Girl“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant