Flippuðustu dressin á MTV Movie Awards

Veit einhver hvaða hljómsveit Palaye Royale er? Þeir munu vera …
Veit einhver hvaða hljómsveit Palaye Royale er? Þeir munu vera næsti stórsmellur popprokk heimsins en ætli fötin þeirra verði það? AFP

Kvikmyndaverðlaunahátíð MTV (MTV Movie Awards) fór fram á laugardagskvöldið. Samkvæmt venju hafa ýmsir tískubloggarar keppst við að tilnefna best og verst klæddu stjörnur kvöldsins en Monitor þótti heldur fáir koma til greina í fyrrnefnda flokkinn. Versti klæðnaburðurinn er að mati Monitor sá óáhugaverðasti, einfaldir svartir kjólar og jakkaföt, og ekki er gaman að greina frá slíku.

Þess vegna ákvað Monitor að taka saman litríkasta, furðulegasta og frábærasta klæðnaðinn af MTV hátíðinni og má sjá val Monitor á myndunum hér að neðan.

Iggy Azalea fetar sjaldan troðnar slóðir en fer þó létt …
Iggy Azalea fetar sjaldan troðnar slóðir en fer þó létt með að troða sinn eiginn slóða í þessum bomsum.
Söngvarinn Scott Hoying var stoltur af Bart Simpson vestinu sínu.
Söngvarinn Scott Hoying var stoltur af Bart Simpson vestinu sínu.
Johnny Depp stal greinilega hattinum hans Pharrell fyrir verðlaunin og …
Johnny Depp stal greinilega hattinum hans Pharrell fyrir verðlaunin og fær því heiðurssæti á á lista Monitor en Josh Hutcherson and Sam Claflin eru alls ekki í flippaða gírnum og komast því ekki á lista. AFP
Ellen Page var í sjálfu sér ekkert voðalega flippuð en …
Ellen Page var í sjálfu sér ekkert voðalega flippuð en andskoti er hún flott. AFP
Mark Wahlberg mætti í sjálflýsandi skóm
Mark Wahlberg mætti í sjálflýsandi skóm AFP
Tískugúrúarnir segja að sjálfsögðu að Lupita Nyong'o hafi verið fabjúlös …
Tískugúrúarnir segja að sjálfsögðu að Lupita Nyong'o hafi verið fabjúlös en Monitor veltir því fyrir sér hvort hún hafi kannski bara verið að flippa. AFP
Jared Leto hlýtur allavega að hafa verið að flippa.
Jared Leto hlýtur allavega að hafa verið að flippa. AFP
Græni leðurmagabolurinn er eitt flipp en pósan er allt annað …
Græni leðurmagabolurinn er eitt flipp en pósan er allt annað flipp. Shailene Woodley á greinilega framtíðina fyrir sér. AFP
Ótti er ekki bara hugarástand hjá Rihönnu sem notar hann …
Ótti er ekki bara hugarástand hjá Rihönnu sem notar hann jafnframt sem ennisband. AFP
Grumpy Cat stal líka hattinum hans Pharrell
Grumpy Cat stal líka hattinum hans Pharrell AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant