Ekki Belfort heldur DiCaprio

Má leggja að jöfnu komu Jordan Belfort til landsins og endalok alheimsins?

Það hefur sennilega ekki farið framhjá nokkrum einasta manni hérlendis, að úlfurinn af Wallstreet, Jordan Belfort, er væntanlegur á klakann í næsta mánuði. Hyggst hann halda fyrirlestur og sölunámskeið í Háskólabíó þann 6. maí og er miðasala í fullum gangi á mbl.is.

Óhætt er að fullyrða að uppi hafi orðið fótur og fit yfir komu fyrirlesarans þar sem siðapostular internetsins hafa haft sig hvað mest frammi og fordæmt framtakið.

Jón Gunnar Geirdal, sem flytur Belfort inn, vísar neikvæðum athugsemdum til föðurhúsanna og bendir á að hér sé um að ræða eitt besta víti til varnaðar svikastarfsemi innan fyrirtækja og stofnanna. Belfort þekki ranghala viðskiptalífsis eins og lófana á sér og hefur vissulega brennt sig á þeim líka. „Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott sagði skáldið og það má hæglega yfirfæra á Belfort,” segir Jón Gunnar.

Eins og áður segir ætlaði allt um koll að keyra og loguðu kommentakerfi landsins sem aldrei fyrr. „Múgæsingurinn var allsráðandi og menn farnir að rugla saman eiginlegum Belfort og leikara myndarinnar um feril Belfort, Leonardo Dicaprio. Það fór allt á hliðina á tímabili og stefndi beinustu leið í ragnarök” segir Jón Gunnar og vísar í myndband sem gengið hefur manna á milli við gríðarlegar vinsældir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler