10 staðreyndir sem þú vissir ekki um brjóst

Brjóst eru snilld í öllum stærðum og gerðum en líklega …
Brjóst eru snilld í öllum stærðum og gerðum en líklega hafa þau verið nokkurt bakböl fyrir Annie Hawkins Turner.

Zaron Burnett III er mikill áhugamaður um brjóst og tók því saman 26 staðreyndir um leyndardóma og ofurkrafta þeirra sem lesa má á Thought Catalog en Monitor fékk tíu þeirra lánaðar lesendum til yndisauka.

1.  Rannsóknir hafa sýnt að örvun geirvartna virkjar sömu svæði í heilanum og örvun á sníp eða leggöngum. Örvun geirvartna getur aukið mjög á áhrif fullnæginga og fyrir sumar konur nægir örvun á geirvörtum til þess að þær fái fullnægingu. Tilgangur geirvartna er ekki aðeins brjóstagjöf og kynlífsgleði því örvun á þeim veitir einnig upplifun á nánd þökk sé oxítósín.

2. Brjóst eru fórnarlömb þyngdaraflsins og munu óhjákvæmilega síga með aldrinum. Brjóstagöf stuðlar ekki að þessari þróun þótt ótrúlegt megi virðast en rannsakendur við Háskólann í Kentucky komust hinsvegar að því að reykingar beina brjóstunum suður. Eins og þú hefðir ekki nógu margar ástæður til að slökkva í rettunni.

3. Rannsóknir hafa gefið til kynna að brjóstamjólk sé öflugt vopn í baráttunni við HIV. Í brjóstamjólk er prótín sem heitir Tenasín-C og mun það vera ástæðan fyrir því að börn mæðra með HIV sleppa gjarna við smit. 

4. Í rannsókn malasískra og enskra brjóstarannsakenda (því allt er nú til) voru 361 karlmanni sýndar myndir af nöktum konum. Þeir voru beðnir um að leggja mat á hversu aðlaðandi konurnar væru en þær sem komust efst á lista voru þær konur sem voru með meðalstór brjóst. 

5. Heimsmetið í brjóstastærð á Annie Hawkins Turner en þegar hún var mæld var hvort brjóst um sig um 25 kíló. Þegar málband var lagt yfir brjóstin á henni mældust þau 177 sentímetrar en þegar kemur að brjóstahöldurum notaði Turnet skálastærðina 102 ZZZ.

6. Árið 2012 seldu undirfataverslanir í Bandaríkjunum brjóstahaldara og önnur undirföt fyrir 11,5 milljarða bandaríkjadala. Þess má geta að árið 2013 keyptu Bandaríkjamenn skotvopn fyrir 11,7 milljarða bandaríkjadala.

7. Enginn veit nákvæmlega afhverju en brjóst elska hvítkál. Ef brjóst eru sár og þrútin er gott húsráð að leyfa þeim að lúlla undir hvítkálsblöðum í smá stund.

8. Brjóst geta drepið. Hin 27 ára Claire Smedley skemmti sér hið besta í ástarleik með unnusta sínum þegar hann varð skyndilega full slakur fyrir hennar smekk. Smedley notar skálastærð 40LL og kærastinn hennar missti meðvitund og var nær kafnaður milli þeirra en sem betur fer tókst henni að koma honum aftur til lífs áður en allt var um seinann.

9. Þýsk rannsókn sýndi fram á að brjóstagláp hefði svipuð áhrif á gagnkynhneigða karlmenn og 30 mínútur af hreyfingu. Brjóstagláp fær hjartað til að slá örar og örvar þannig hringrás blóðsins og minnkar hættu á hjartaáfalli. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að brjóstagláp vegur að hæfileikum karlmanna til að hugsa skýrt en karlmennirnir í rannsókninni stóðu sig verr á gáfnaprófum fyrir glápið en eftir það. 

10. Konur í Bandaríkjunum eiga að meðaltali níu brjóstahaldara hver en þær þurfa ekki að ganga í þeim eða nokkru öðru í Hawaii, Ohio, New York og Texas. Í þeim ríkjum hafa konur fullan lagalegan rétt til að ganga um berar að ofan að vild.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson