Klingenberg hættir lífi og limum fyrir spádómsegg.

Sigríður Klingenberg er einhver litríkasta spákona okkar Íslendinga og lífskúnstner með meiru. Sigga Kling, eins og við köllum hana flest, hefur fóðrað landann á stjörnuspám sem hafa vakið gríðarlega athygli og skapast heilmikil eftirvænting bak við tölvuskjái um land allt þegar líða fer að spádómsdegi.

Spádóma Siggu má nálgast á lífsstílsvefnum tiska.is og koma nýir og ferskir spádómar á þriggja vikna fresti. Áhuginn er slíkur að menn og konur eru farin að iða í skinninu þegar fer að líða að þriðju og síðustu vikunni. Samfélagsmiðlarnir hafa iðulega logað af eftirspurn á lokametrunum.

Áhuginn á spádómunum hefur verið slíkur að Sigga hefur nú í samvinnu við Góu sett á markað svokölluð spádómsegg. Þannig mun Sigga svala spáþyrstum yfir páskahátíðina og vert er að brýna fyrir fólki að spádómsbók er í botni kassans, honum skal því alls ekki henda.

Það er óhætt að segja að Sigga sé í sannkölluðum söluham um þessar mundir og lætur bókstaflega ekkert stoppa sig. Ekki einu sinni heimsendi ef því er að skipta.

Voruði búin að sjá hana í gírnum?

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson