Hættir sviðsdýfum vegna áreitni

Iggy Azalea hefur orðið fyrir síendurtekinni kynferðislegri áreitni á tónleikum.
Iggy Azalea hefur orðið fyrir síendurtekinni kynferðislegri áreitni á tónleikum.

Rapparinn Iggy Azalea er líklega einn vinsælasti kvenrappari heims um þessar mundir og þekkt fyrir frjálslega sviðsframkomu. Hún hefur þó þurft að hætta að iðka svokallaðar sviðsdýfur (e. crowd surf) þar sem hún lét sig falla af sviðinu og áhorfendur báru hana á höndum sér. Ástæðuna segir hún vera þá að aðdáendur hennar hafa ítrekað reynt að stinga fingrum sínum inn í líkama hennar á tónleikum og áreitt hana þannig kynferðislega.

Azalea sagði frá þessum upplifunum sínum í útvarpsviðtali síðastliðinn þriðjudag. „Ég sé tíst svona viku fyrir tónleika, eins og 'Ég er að fara á Iggy Azalea tónleikana og ég ætla að putta hana',“ sagði Azalea. „En ég segi plís ekki! Það er áreitni. Það er ekki eitthvað sem ég vill.“

„Þau halda að ég sé rosalega lauslát, eins og 'Ó, hún á lag sem heitir Pu$$y, ég veit hvað hún vill, hún vill þessa tvo putta.'  Afhverju ætti ég að vilja láta einhvern ókunnugan putta mig,“ sagði Azelea og bætti við að þó svo að einhver hefði keypt plötuna hennar þýddi það ekki að viðkomandi fengi að gera slíka hluti við hana. Hún segir karlmenn langt því frá einu sökudólgana enda séu konurnar margar hverjar áleitnari. Hún segist hafa vanið sig á að vera í þremur lögum af fötum undir búningunum sínum til að verjast potum áhorfenda, tveimur nærbuxum og húðlituðum sokkabuxum.

 Hægt er að horfa á viðtalið hér að neðan en Monitor varar við því að eitt og sér er viðtalið efni í um 300 kynlegar athugasemdir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson