Í Friheden-skemmtigarðinum í Danmörku er þetta frumlega tæki. Maður hreinlega fellur í lausu lofti og treystir á að netið fyrir neðan sé nógu traust til að grípa mann.
Í tækinu, sem heitir „The Sky Tower“ eða „Himnaturninn“, er hægt að ná allt að 88 kílómetra hraða áður en netið grípur.
Vísindamenn hafa notað tækið til að rannsaka heilavirkni við aðstæður þar sem menn eru við dauðans dyr. Þetta kemur fram á fréttavefnum Metro.
Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig tækið virkar.