Svæsið myndband frá Nicki Minaj

Minaj er ekki fisjað saman.
Minaj er ekki fisjað saman. YouTube

Nýjasta myndbandi Nicki Minaj virðist ætlað að útkljá endanlega að hún sé drottning lögulegra (og hristanlegra) afturenda. 

Myndbandið ,sem kom út fyrr í dag, er við lagið „Anaconda“sem byggir á lagi Sir Mix-A-Lot „Baby Got Back“ en það fjallaði einmitt um ást rapparans á konum með stóra rassa. Texti Minaj fjallar einnig um stóra rassa og stóra líkama almennt en í textanum eru þó einnig kynlífslýsingar og vísanir í eiturlyf. 

Í myndbandinu hrista Nicki Minaj og dansarar hennar þjóhnappana eins og lífið liggi við auk þess sem Minaj tekur nokkrar leikfimiæfingar og dansar kjöltudans fyrir rapparann Drake. Án þess að fara nánar út í efni myndbandsins fullyrðir Monitor að það gæti jafnvel fengið Miley Cyrus til að roðna, en sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson