Setti á svið eigin dauðdaga til að forðast brúðkaupið

Alex segir frá upplifun sinni í myndbandinu hér að neðan.
Alex segir frá upplifun sinni í myndbandinu hér að neðan.

Hinn 23 ára Tucker Blanford átti að gifta sig 15. ágúst. Eitthvað virðist hann hafa verið óöruggur með þá ákvörðun því hann ákvað að setja á svið eigin dauðdaga til þess að komast hjá því að giftast kærustu sinni til tveggja ára, Alex Lanchester.

Parið kynntist þegar Lanchester, sem er ensk, var í skiptinámi í Bandaríkjunum. Þau trúlofuðu sig áður en hún fór aftur heim og áttu í fjarsambandi. Þau höfðu verið að undirbúa brúðkaupið mánuðum saman og Lanchester hafði þegar keypt sér brúðarkjól og greitt ljósmyndurum þegar símtal barst frá Bandaríkjunum.

Blanford hringdi í Lanchester og lét sem hann væri faðir sinn. Hann og tjáði henni að hann, unnusti hennar, hefði kastað sér fyrir bíl í kjölfar dúpstæðs þunglyndis. Eðlilega tóku fréttirnar mikið á Lanchester en þegar hún hafði fengið tækifæri til að melta fréttirnar og róast örlítið hringdi hún aftur í foreldra Blanford. Þá svaraði móðir Blanford í símann sem kom af fjöllum og tjáði Lanchester að hann væri sprelllifandi. Blanford hafði sagt foreldrum sínum að leiðir hans og Lanchester hafi skilið þegar hún yfirgaf Bandaríkin og varð því fljótt ljóst að Blanford hafi einungis ætlað að forðast að hætta með henni augliti til auglitis. 

Blanford hefur viðurkennt lygina fyrir fjölmiðlum og gefið þá skýringu að hann hafi verið hræddur og að sambandið hafi verið að þróast of hratt. Lanchester segist hinsvegar vera fegin að vera laus við Blanford eftir allt saman enda sé hann lygari og heigull.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson