Lið Menntaskólans við Sund og Flensborgarskólans í Hafnarfirði mætast í úrslitum MORFÍs sem fram fara í Háskólabíói annað kvöld.
Monitor þótti ekki næg ólga á milli liðanna tveggja og skoraði því á þau í einfalda rapp-battl-keppni til að sýna hvor skólinn hefði í raun munninn fyrir neðan nefið.
Frammistöðuna má sjá hér að ofan en þú getur sagt þína skoðun á því hvor rappaði betur á Facebook-síðu Monitor.