Stjarnan - Víðir 2:1

Jón Svavarsson

Stjarnan - Víðir 2:1

Kaupa Í körfu

Stjörnumenn fögnuðu ákaft í gær er þeir unnu Víði, 2:1, og tryggðu sér um leið 2. sætið í 1. deild sem gaf þeim sæti í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu að vori. Stjarnan fékk 29 stig, einu stigi meira en FH sem lagði KVA 3:1 og endaði í þriðja sæti. Tap Víðis þýddi hins vegar að það féll í 2. deild með KVA. Víðir fékk 21 stig, jafnmörg stig og Þróttur, sem náði janftefli við Dalvík. Þróttur hélt sér hins vegar uppi á betri markatölu en Víðir. ÍR, sem stóð vel að vígi í 2. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina, tapaði 1:0 fyrir KA og endaði því í 4. sæti með 26 stig. Dalvík fékk einnig 26 stig í 5. sæti en KA varð í sjötta sæti með 23 stig.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar