Skáldið sendi frá sér 62 rit á 68 árum:

Ótrúleg afköst

Ritsafn Halldórs Laxness er mikið að vöxtum og ber vott um ótrúleg afköst skáldsins. Skáldsögurnar einar telja á níundu milljón tölvubæta og eru þá ótalin leikrit og greinasöfn. Til samanburðar má geta þess að allar Íslendingasögurnar eru rúm fimm milljón bæti.

Halldór Laxness sendi frá sér á sjöunda tug bóka en þess ber að geta að sumar skáldsögurnar voru síðar felldar í eina bók. Ritsafn hans hefur því að geyma fimmtíu og eina bók. Verk hans eru hér talin upp í þeirri röð sem þau komu út og þess getið hvort um er að ræða skáldsögu (og þá hluta af hvaða verki), leikrit, ljóð, greinar, ferðasögur eða minningasögur:

  • 1919 Barn náttúrunnar, skáldsaga
  • 1923 Nokkrar sögur, smásögur
  • 1924 Undir Helgahnúk, skáldsaga
  • 1925 Kaþólsk við horf, ritgerð
  • 1927 Vefarinn mikli frá Kasmír, skáldsaga
  • 1929 Alþýðubókin, greinar
  • 1930 Kvæðakver, ljóð
  • 1931 Þú vínviður hreini (Salka Valka), skáldsaga
  • 1932 Fuglinnn í fjörunni (Salka Valka), skáldsaga
  • 1933 Fótatak manna, smásögur (sjá Þætti)
  • 1933 Í Austurvegi, ferðasaga
  • 1934 Straumrof, leikrit
  • 1934 Sjálfstætt fólk I, skáldsaga
  • 1935 Sjálfstætt fólk II, skáldsaga
  • 1935 Þórður gamli halti, smásaga (sjá Þættir)
  • 1937 Dagleið á fjöllum, greinar
  • 1937 Ljós heimsins (síðar nefnt Kraftbirtíngarhljómur guðdómsins), (Heimsljós), skáldsaga
  • 1938 Gerska æfintýrið, ferðasaga
  • 1938 Höll sumarlandsins (Heimsljós), skáldsaga
  • 1939 Hús skáldsins (Heimsljós), skáldsaga
  • 1940 Fegurð himinsins (Heimsljós, skáldsaga
  • 1942 Vettvángur dagsins, greinar
  • 1942 Sjö töframenn, smásögur (sjá Þætti)
  • 1943 Íslandsklukkan (Íslandsklukkan), skáldsaga
  • 1944 Hið ljósa man (Íslandsklukkan), skáldsaga
  • 1946 Eldur í Kaupinhafn (Íslandsklukkan), skáldsaga
  • 1946 Sjálfsagðir hlutir
  • 1948 Atómstöðin, skáldsaga
  • 1950 Reisubókarkorn, greinar
  • 1950 Snæfríður Íslandssól, leikrit (upp úr Íslandsklukkunni)
  • 1952 Gerpla, skáldsaga
  • 1952 Heiman eg fór, skáldsaga/minningasaga
  • 1954 Silfurtúnglið, leikrit
  • 1954 Þættir, smásögur (fyrri smásagnasöfnum safnað saman)
  • 1955 Dagur í senn, greinar
  • 1957 Brekkukotsannáll, skáldsaga
  • 1959 Gjörníngabók, greinar
  • 1960 Paradísarheimt, skáldsaga
  • 1961 Strompleikurinn, leikrit
  • 1962 Prjónastofan Sólin, leikrit
  • 1963 Skáldatími, greinar
  • 1964 Sjöstafakverið, smásögur
  • 1965 Upphaf mannúðarstefnu, greinar
  • 1966 Dúfnaveislan, leikrit
  • 1967 Íslendíngaspjall, greinar
  • 1968 Kristnihald undir Jökli, skáldsaga
  • 1969 Vínlandspúnktar, greinar
  • 1970 Innansveitarkronika, skáldsaga
  • 1970 Úa, leikrit (upp úr Kristnihaldi undir Jökli)
  • 1971 Yfirskygðir staðir, greinar
  • 1972 Guðsgjafaþula, skáldsaga
  • 1972 Norðanstúlkan, leikrit (upp úr Atómstöðinni)
  • 1974 Þjóðhátíðarrolla, greinar
  • 1975 Í túninu heima, minningasaga I
  • 1976 Úngur eg var, minningasaga III
  • 1977 Seiseijú, mikil ósköp, greinar
  • 1978 Sjömeistarasagan, minningasaga II
  • 1980 Grikklandsárið, minningasaga IV
  • 1981 Við heygarðshornið, greinar
  • 1984 Og árin líða, greinar
  • 1986 Af menníngarástandi, greinar
  • 1987 Dagar hjá múnkum, minningabók




© Morgunblaðið 1998.

Skáldskapurinn

Persónusköpun

Heimildir og sögusvið

Fleyg orð

Umsagnir vestra

Umsagnir í Þýskalandi

Umsögn í NY Review of Books