Nýsköpun '99

Verðlaunaverkefnin

Skilgreining

Þátttökuréttur

Mat & verðlaun

Aðstoð

Leiðbeiningar


Frumkvöðlar mikilvægir hverju samfélagi

Miklar vonir bundnar við nýja „frumkvöðlabylgju“

Viðskiptaáætlanir og virkjun hugmynda


PDF-skjal
Nýsköpun '99 (464K)

PDF-skjal
Nýsköpunarnámskeið (1.306K)

PDF-skjal
Excel f. Windows (88K)

PDF-skjal
Excel f. MacOS (48K)

PDF-skjal
Powerpoint f. Windows (315K)

PDF-skjal
Powerpoint f. MacOS (320K)

  Þjónusta við þátttakendur

Vandlega hugsuð viðskiptaáætlun er forsenda fyrir árangri. Þátttaka í samkeppninni gæti verið fyrsta skrefið til árangurs!

Leiðbeiningahandbók
Handbókin hefur að geyma ítarlegar leiðbeiningar um gerð viðskiptaáætlana. Miklu skiptir að áætlunin taki sem mest mið af þessum leiðbeiningum og öðru kennsluefni sem stendur þátttakendum til boða. Handbókinni fylgir disklingur með töflum í excel. Útfylling þeirra er afar einföld og mjög miklu máli skiptir að vinna þessar uppsetningar vel og samviskusamlega. Munið að tölur þarf að skýra út. Þannig nægir ekki að setja fram tölur um sölu á ákveðnu tímabili. Tölur í áætlun eru fullyrðing sem ætíð verður að færa rök fyrir. Vandlega rökstudd áætlun sem gerir ráð fyrir trúverðugri arðsemi virkar betur á fjárfesta heldur en áætlun með svimandi arðsemi sem erfitt er að henda reiður á.

Síma- og tölvupóstþjónusta við þátttakendur
Skráðum þátttakendum stendur til boða aðstoð í gegnum síma eða með aðstoð tölvupósts. Þjónustan er endurgjaldslaus og veitt eins og mannafli og tími leyfa. Þessi þjónusta er almenns eðlis og tiltölulega skammvinn, en þátttakendum er ráðlagt að snúa sér til sérfræðinga (t.d. endurskoðanda, lögfræðings eða rekstrarráðgjafa) ef þess gerist þörf.

Námskeið
Markmið með námskeiðum er að gera þátttakendur hæfari til að útbúa viðskiptaáætlun sem uppfyllir settar kröfur keppninnar. Ennfremur er markmiðið að þátttakendur kynnist innbyrðis og reynt verður að veita ráðgjöf og aðstoð eftir því sem tök eru á. Á námskeiðum er stuðst við hefti Nýsköpunarsjóðs um gerð viðskiptaáætlana og reynslu KPMG af slíkum verkefnum. Leiðbeinendur koma frá Viðskiptaháskólanum og KPMG. Námskeiðin verða auglýst í Morgunblaðinu.

Vinnuhópar og persónuleg kynni
Þátttakendum verður boðið að koma á spjallfundi í húsnæði Viðskiptaháskólans. Á fundum þessum verða fyrst flutt stutt erindi/fyrirlestur um viðfangsefni sem höfðar til þátttakenda. Síðan verður málefnið rætt. Á fundina mæta fulltrúar fjárfesta, fulltrúar úr atvinnulífinu, ráðgjafar og skipuleggjendur samkeppninnar.

                                                                                                 

Senda fyrirspurn

Nýsköpunarsjóður

Morgunblaðið

Viðskiptaháskólinn í Reykjavík

KPMG ráðgjöf