Nýsköpun '99

Verðlaunaverkefnin

Skilgreining

Þátttökuréttur

Mat & verðlaun

Aðstoð

Leiðbeiningar


Frumkvöðlar mikilvægir hverju samfélagi

Miklar vonir bundnar við nýja „frumkvöðlabylgju“

Viðskiptaáætlanir og virkjun hugmynda


PDF-skjal
Nýsköpun '99 (464K)

PDF-skjal
Nýsköpunarnámskeið (1.306K)

PDF-skjal
Excel f. Windows (88K)

PDF-skjal
Excel f. MacOS (48K)

PDF-skjal
Powerpoint f. Windows (315K)

PDF-skjal
Powerpoint f. MacOS (320K)

  Hagnýtar leiðbeiningar

Hugmynd er eitt -- framkvæmdin annað. Mörg fyrirtæki gefast upp vegna þess að ekki var vandað nægjanlega vel til undirbúnings. Það getur varðað hag og heill fjölskyldunnar að fara varlega í upphafi og vega og meta möguleika og áhættu sem felast í verkefninu. Raunsæ viðskiptaáætlun sem unnin er af natni og yfirlegu er besta tryggingin til að komast hjá mistökum.

Textinn á að vera skýr og læsilegur
Mundu að textinn er ekki aðeins skrifaður fyrir þig heldur einnig fyrir aðra. Hafðu ætíð hugfast að þú ætlar að baka köku sem aðrir munu smakka á. Ef þeir eru ánægðir ert þú ánægður, ef þeir eru óánægðir ert þú óánægður. Þetta á raunar við um allar vörur og þjónustu, ef viðskiptavinurinn er ekki sáttur er kakan vond -- hversu mjög sem vandað var til baksturs hennar og hráefna!

Reyndu að meta hvaða spurninga dómnefndarmenn muni spyrja sjálfa sig og gerðu þeim eins auðvelt og kostur er að finna svörin. Vertu þess einnig minnugur, að sparðatíningur og langdregnar útskýringar á smáatriðum þreyta lesandann og geta skapað andúð af hans hálfu. Komdu þér alltaf að kjarna málsins og meitlaðu textann -- aftur og aftur og aftur!

Í leiðbeiningum fyrir þátttakendur hér á eftir er fjallað um lengd og umfang innsendra gagna. Haltu þig við þessar leiðbeiningar því það eykur sigurlíkur þínar.

Verið málefnaleg og jarðbundin -- sérfræðingar eru venjulega fljótir að sjá í gegnum draumóra og skýjaborgir. Eftirláttu lesandanum að leggja hlutlægt mat á fyrirætlanir þínar. Gættu þess samt mjög vandlega að lesandinn fái ekki á tilfinninguna að þú trúir ekki innst inni á eigið verkefni. Bentu aldrei á veikleika í fyrirætlunum þínum án þess að gera vandlega grein fyrir því með hvaða hætti þú getir unnið gegn þeim og jafnvel snúið þeim þér í hag þegar fram líða stundir.

Öllum skiljanleg
Spurðu þig aftur: Hver á að borða kökuna? Forðastu flóknar tæknilegar lýsingar á mörgum blaðsíðum. En skilur lesandinn útlistanir þínar og áttar hann sig á mikilvægi þeirra? Sýndu hér sérstaka varkárni -- lesandi sem ekki botnar í tæknilegum útskýringum byggir ekki upp jákvætt viðhorf til verkefnisins. Segðu frá tæknihliðinni í einfölduðu máli og eins og kostur er á myndrænan hátt, jafnvel með ljósmynd ef það hentar. Nauðsynlegt kann að reynast að vera með tæknilega lýsingu í viðauka við viðskiptaáætlun en gættu þess að vera ekki með meira en þörf krefur.

Þeir sem hafa samið viðskiptaáætlun, vita að það er ákveðin hætta á að týna sér í útlistunum sem í sjálfu sér hafa lítið gildi. Staldraðu því öðru hvoru við og spurðu hvort þú getir stytt textann og meitlað setningarnar!

Klæðskerasaumuð áætlun
Ef þið eruð mörg sem komið að samningu áætlunar er æskilegt að eitt ykkar taki að sér að fara vandlega yfir textann í lokin til að tryggja innra samræmi bæði hvað varðar innihald og útlit skjalsins.

Ef þess er nokkur kostur ættirðu að fá einhverja aðila sem þú treystir til að lesa próförk af áætluninni og koma með sem mest af gagnrýni. Staðreyndin er sú að flestir eru haldnir ákveðinni blindu gagnvart eigin hugverki eftir að hafa unnið mikið í því.

Leitaðu aðstoðar fagfólks
Það getur borgað sig að leita aðstoðar hjá t.d. endurskoðanda, ráðgjafa eða lögfræðingi í ákveðnum málum sem varða áætlunina. Einnig má víða leita fanga um lesefni, t.d. á Internetinu og á bókasöfnum. Misstu ekki móðinn. Það krefst einbeitingar og vinnu að útbúa góða viðskiptaáætlun, en það er fyrirhafnarinnar virði. Best er að byrja á að reyna að brjóta verkefnið niður í verkþætti og gefa hverjum verkþætti ákveðinn tíma. Þannig gætirðu ákveðið að nota fyrstu vikuna í undirbúning, gerð verkáætlunar og gagnasöfnun.

Nýttu þá þjónustu sem í boði er. Ef sérstök vandamál eru á ferðinni skaltu senda okkur tölvupóst eða slá á þráðinn og athuga hvort við getum leiðbeint þér frekar. Það er einnig mikill stuðningur af því að sækja námskeiðin og kynnast öðrum sem eru í sömu sporum og þú.

Fáein heilræði
Hafðu áætlun þína einhvers staðar í kringum 20 blaðsíður auk viðauka. Eftirfarandi gróf skipting kæmi til greina:

  • Samantekt 1-2 bls.
  • Um fyrirtækið, starfsmenn og skipulag þess 2-3 bls.
  • Vara/þjónusta 3-5 bls.
  • Markaðurinn 3-4 bls.
  • Markaðsfærsla, sala 4-6 bls.
  • Fjárhagsáætlanir 5-6 bls. (lágmark, rekstur, efhahagur, sjóðstreymi og kennit.)
  • Næmisathuganir 2-3 bls.

Að síðustu er minnt á að hafa eftirfarandi atriði í lagi:

  • Blaðsíðutal.
  • Fylgiblað með persónulegum upplýsingum er með áætluninni.
  • Búið er að fylla út alla þætti í excel skjalinu.
  • Gögn eru vandlega merkt sem Trúnaðarmál
  • Áætlunin er í þremur eintökum.

Í listanum hér að neðan er gerð grein fyrir atriðum sem máli skipta við mat á viðskiptaáætlunum. Reyndu að leggja mat á þína áætlun og fáðu aðra til að gera það einnig.

Samantekt: D C B A
Hversu vel er gerð grein fyrir hugmynd og þekkingu eigenda? 0 3 4,5 6
Hversu mikil er viðskiptaleg þekking og reynsla eigenda? 0 2 3 4
Er um að ræða einfalda hugmynd sem er um leið nýsköpun? 0 4 6 8
Fyrirtækið:
Hversu staðgóð er viðskiptaleg og tæknileg þekking frumkvöðlanna? 0 2 3 4
Fullnægir starfsaðstaða kröfum (innréttingar, stærð, lager)? 0 2 3 4
Hentar réttarformið verkefninu? 0 2 3 4
Er gerð grein fyrir mikilvægi og hlutverki fjárfesta í framtíðinni? 0 1 1,5 2
Vara/þjónusta:
Er um að ræða einfalda hugmynd sem um leið felur í sér nýsköpun? 0 9 18 27
Eru not viðskiptavina af vöru/þjónustu augsæ? 0 3 4 5
Er skynsamlegt að halda áfram að þróa vöru/þjónustu? (D=nei, A=já) 0 1 1,5 2
Eru líkur til að fyrirtækið/ varan standist samkeppni til lengri tíma litið? 0 2 3 4
Er gerð grein fyrir kostum og göllum á afurðum keppinauta? 0 1 1,5 2
Er gerð grein fyrir vörum/þjónustu sem eru í beinni samkeppni? 0 1 1,5 2
Markaðurinn:
Er vandlega gerð grein fyrir þróun atvinnugreinarinnar? 0 3 4,5 6
Er markhópurinn augljóslega rétt valinn? 0 2 3 4
Er gerð grein fyrir þróun helstu markhópa (segmenta), stærð, keppinautum,
markaðshlutdeild, almennri þróun á markaðnum o.s.frv.? 0 10 15 20
Markaðsfærsla:
Henta verðákvarðanir markhópnum og afurðinni? 0 2 3 4
Er innkoma á markaðinn vel ígrunduð? 0 2 3 4
Er val á dreifileiðum og kynningu skynsamlega hugsað? 0 2 3 4
Hentar kynningarstefna (auglýsingar, bæklingar o.s.frv.) markhópi og afurð? 0 2 3 4
Eru söluáætlanir vel rökstuddar og líklegar til árangurs? 0 3 4,5 6
Skipulag:
Er sett fram vel útfært og einfalt skipurit? 0 1 2 3
Eru öll helstu svið rekstrarins skilgreind? 0 1 2 3
Er sýnt fram á hvaða upplýsingar skipta mestu máli fyrir stjórnun fyrirtækisins? 0 2 3 4
Er á skýran hátt gerð grein fyrir áhrifum vaxtar fyrirtækisins á skipulag þess? 0 1 2 3
Er ábyrgð dreift með heppilegum hætti á einstökum sviðum starfseminnar? 0 2 3 4
Liggur fyrir góð áætlun í starfsmannamálum? 0 2 3 4
Áætlanir:
Er framsetning skýr og aðgengileg? 0 2 3 4
Hvernig eru gæði:
Kostnaðarathugunar og næmisathuganir? 0 2 3 4
Framkvæmdaáætlunar (tímapunktar) 0 2 3 4
Mat á stofnkostnaði 0 2 3 4
Rekstraráætlunar 0 2 3 4
Greiðsluáætlunar (sjóðstreymis) 0 2 3 4
Mats á heildarfjárþörf, fjármögnun og stofnefnahagsreikningi? 0 2 3 4
Er fjármögnun á fjárþörf raunhæf? 0 2 3 4
Er arðsemi fyrirtækisins góð? 0 3 4 5
Virðist verkefnið almennt séð vera skynsamlegt frá sjónarhóli fjárfesta? 0 3 4 5
Stig samtals: 0 90 139,5 189
                                                                                                 

Senda fyrirspurn

Nýsköpunarsjóður

Morgunblaðið

Viðskiptaháskólinn í Reykjavík

KPMG ráðgjöf