Rebecca Hayes og David Ward tóku aldrei fjölskyldumyndir þegar sonur þeirra Clayton var ungabarn. Þau ákváðu því að bæta fyrir það 21 ári seinna.
Hayes og Ward eignuðust son þegar þau voru í menntaskóla. Þó svo að þau hættu saman og giftust öðrum héldu þau áfram að vera vinir. Eftir að makar þeirra beggja létust byrjuðu þau að eyða miklum tíma saman sem endaði með því að þau byrjuðu aftur saman.
Í viðtali við Huffington Post sagði Heyes að hugmyndin að myndatökunni hefði komið þegar þau sátu heima í stofunni og hlógu að því hvað líf þeirra væri skrítið. „Ég hálfgrínaðist með þetta en bæði David og Clay voru til svo ég þurfti að hoppa með,“ sagði Heyes.
„Ég vil bara að fólk vitið að lífið getur verið stundum skrítið og hræðilegt og dásamlegt. Þú veist aldrei hvert það leiðir þig,“ sagði Heyes.