Hefur aldrei verið jafnblönk
Söngkonan Whitney Houston á ekki sjö dagana sæla og virðist sem peningar hennar séu uppurnir. Hún græddi á tá og fingri þegar hún var upp á sitt besta. Hver man ekki eftir henni þegar hún söng lagið I Will Always Love You? Vefmiðillinn RadarOnline greinir frá því að söngkonan sé búin að vera og gangi nú á milli vina sinna og biðji þá að lána sér peninga.
„Houston er búin að vera. Það veit enginn hvort hún nær sér á strik í tónlistinni eða hvernig þetta þróast hjá henni,“ sagði heimildarmaður í samtali við vefmiðilinn. Í fyrra fór hún í enn eina meðferðina til að reyna að sigrast á eiturlyfjafíkn sinni.
„Hún gæti verið heimilislaus ef vinir hennar hlypu ekki undir bagga með henni. Hún á enga peninga. Hún hringdi um daginn og bað um að fá 100 dollara lánaða. Þetta er svo sorglegt. Hún ætti að vera jafnrík og Mariah Carey en það situr ekkert eftir.“




















