Fimm auðveld sparnaðarráð
Þór Clausen, MSc í fjármálum, segir í grein inni á meniga.is að fólk eigi að forgangsraða sparnaðnum og mælir með því að fólk grandskoði tilboð símafyrirtækjanna.
Yfirsýn og skipulagning
Vertu með tvo bankareikninga. Notaðu annan til að taka á móti ráðstöfunartekjum og öðrum tekjum. Af þessum reikningi greiðir þú einnig mánaðarleg útgjöld. Millifærðu svo fyrsta hvers mánaðar jákvæðan mismuninn af fyrri reikning og byggðu þannig upp sýnilegan sparnað sem færist sérstaklega. Með þessu móti er auðvelt að stýra neyslunni sem raunverulega þarf að leggja í og gera sér betur grein fyrir í hvað afgangurinn er að fara. Þannig öðlast þú betri sýn yfir fjármálin þín og eyðslan verður áþreifanlegri. Þú losnar við spurningar eins og „Í hvað fóru eiginlega aukalegu launin þennan mánuðinn?". Yfirsýn og skipulagning eru fyrstu skrefin til að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði og ganga vel í eigin fjármálum.
Forgangsraðaðu sparnaðinum
Mikilvægt er að forgangraða sparnaðinum og gera sér grein fyrir því hvar er hægt að spara og hvar er ákjósanlegast að spara með tilliti til vaxtagreiðslna. Til dæmis þarf að vega og meta hvort greiða á niður yfirdráttarlán eða leggja fyrir á sparnaðarreikning. Ef vextirnir af yfirdráttarláninu eru t.d 16% en vextir þér til handa á sparnaðarreikningnum eru 12% þá borgar sig að greiða frekar niður yfirdráttarlánið.
Fáðu tilboð þegar þú þarf að láta vinna fyrir þig
Þegar gera á við bílinn sem dæmi (en taka má hvaða dæmi sem er), skaltu fá tilboð frá fleiri en einum aðila, bera þau saman og vega og meta hver hentar þér best, t.d sá lægsti eða sá vandvirkasti? Reyndu jafnvel að prútta um upphæðina, það sakar allavega ekki! Einnig er mikilvægt að á hreinu sé hvað á að gera við bílinn þannig að þú fáir ekki bakreikninga vegna viðgerðar sem þú baðst ekki um. Hér er hægt að spara þúsundir króna á ári.
Minnkaðu notkun á ýmsu
- Sparaðu í ljósakostnaði á heimilinu - stundum er allt uppljómað, jafnvel um miðjan dag. Það að hafa rafmagnsnotkun í huga sparar töluvert til lengri tíma litið.
- Hægt er að nota sparnaðarhleðslutæki í sjónvörp og tölvur; einnig sérstakar sparnaðarperur í ljós.
- Þvoðu þvott á lægri hita.
- Ekki ofhlaða farsímann þinn, það eyðir rafmagni og fer illa með rafhlöðu símans.
Grandskoðaðu tilboð símafyrirtækjanna
Mjög erfitt er að bera saman tilboð símafyrirtækjanna, þvílíkur frumskógur sem það er. Mikilvægt er þó að reyna að berjast í gegnum þennan frumskóg og gera sér grein fyrir hvaða tilboð hentar þinni fjölskyldu miðað við þær vörur og þjónustu símafyrirtækjanna sem í boði eru. Sumir loka heimasíma og nota aðeins farsíma, skrá vini þar inn og geta hringt frítt í sína nánustu. Þetta getur sparað manni þúsundir króna á mánuði.




















