Áfangastaður: Bandaríkin / Boston

Boston.

Boston í Massachusetts-ríki er stærsta borg ríkisins og höfuðborg með liðlega 4,3 milljónir íbúa. Borgin er einhver sögufrægasta, ríkasta og áhrifaríkasta borg Bandaríkjanna. Boston þykir samt með evrópskan borgarbrag á margan hátt.  Hún er rík af söfnum og sögulegum byggingum og minjum sem ásamt iðandi götu- og tónlistarlífi skýrir hvers vegna yfir 16 milljónir manna heimsækja borgina ár hvert og gera hana einn af tíu vinsælustu áfangastöðum landsins.

 


Tenglar

Athugasemdir:
18. júní kl. 16:02

Boston og svæðið þar í kring er mjög merkilegt svæði í sögu Bandaríkjana. Þar má segja að frelsisbaráttan hafi hafist. Borgin er skemmtileg blanda af gömlu og nýju og ekki eins slétt og felld og margar bandarískar borgir eru. Þar að auki er Boston eins konar tæknihöfuðborg austurstrandarinnar. Listasafn MIT háskólans er mjög áhugavert og vel þess virði að gera sér ferð yfir Charles ánna til Cambridge til að sækja það. Í leiðinni má svo einnig skreppa yfir til Harvard, snerta tánna á John Harvard styttunni og anda að sér akademísku lofti af hæstu gæðum.

Páll Thayer
18. júní kl. 16:10

Boston er í hæfilegri akstursfjarlægð frá mörgum fínum skíðasvæðum bæði í Vermont (Stowe, Jay Peak) og New Hampshire (White Mountains). En ef þú ert þar að sumri er gaman að skreppa norður-fyrir og skoða strandlífið í Maine.

Páll Thayer
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Höfn

    V4 6°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V5 4°C

    Skýjað
  • Akureyri

    VSV3 5°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit