Áfangastaður: Bandaríkin / Seattle
Seattle er fjölmennasta borg Washingtonríkis í norðvestanverðum Bandaríkjunum með alls um tæplega 600 þúsund íbúa í borginni sjálfri en liðlega 3,2 milljónir íbúa á nærsvæði borgarinnar öllu. Seattle er mikil hafnarborg, nábýlið við hafið órjúfanlega tengt borginni en ekki síður státar hún af afar fagurri fjallasýn og hinum annálaða Olympic-þjóðgarði. Búseta á svæðinu teygir sig 4.000 ár aftur í tímann en fyrstu hvítu frumbyggjarnir komu á þessar slóðir um miðja 19. öldina. Byggðin var síðar nefnd Seattle sem er sögð enskuskotin afbökun á nafninu Sealth en það var heiti annars af helstu höfðingjum tveggja indjánaættbálka á þessum slóðum.
Um langa hríð var gælunafn borgarinnar Drottningaborgin en hefur seinna fengið opinbera gæluheitið Smaragðsborgin (Emerald City) að undangenginni samkeppni um slíkt nafn en hún hefur einnig verið nefnd Alaskahliðið, Regnborgin og Þotuborgin – hið síðastnefnda tengt höfuðstöðvum Boeing-flugvélaverksmiðjanna á þessum slóðum. Í Seattle eru einnig höfuðstöðvar Microsoft-tölvurisans.
Seattle er einnig fæðingarborg rokkgoðsins Jimi Hendrix og í borginni á grunge eða gruggtónlistin uppruna sinn sem hljómsveitirnar Nirvana og Pearl Jam hófu til vegs og virðingar. Seattle er því tilvalinn pílagrímsstaður fyrir aðdáendur þessarar tónlistar og tónlistarmanna.
Tenglar
- Um Seattle hjá Ferðaheimi
- Seattle á Wikitravel
- Upplýsingar heimamanna á ensku um Seattle
- Bandaríkin á Wikipedia
- Upplýsingar heimamanna um Bandaríkin á ensku
- Bandaríkin hjá Ferðaheimi
- Bandaríska sendiráðið á Íslandi
- Hagnýtar upplýsingar VUR um Bandaríkin
- Vagga Seattle ruggar við sjávarbakkann
- Eins og ég sé stödd í ævintýri
- Rokk verður til
- Vínin frá Washington
- Íslenskir landnemar og frumbyggjar Ameríku
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Höfn
V4 6°C
-
Kirkjubæjarkl.
V5 4°C
-
Akureyri
VSV3 5°C








