Áfangastaður: Bretland / Edinborg

Edinborg.

Edinborg er höfuðborg Skotlands og aðsetur skoska þingsins með um 450 þúsund íbúa en um 1 milljón á nærsvæðinu öllu. Borgin er upphaflega byggð á útdauðri eldstöð við vík inn af Norðursjónum (The Firth of Forth), umlukt bröttum hæðum, vötnum (lochs) og skógum og býður beinlínis upp á nánari skoðun. Þetta er borg fallegra stræta, þröngra sunda og óviðjafnanlegra sólsetra. Helsta bygging borgarinnar er sjálfur Edinborgarkastali, óvinnandi virki til forna, og út frá honum hefur byggðin þróast. Í gömlum götum niður af honum úir og grúir af veitingastöðum og krám og frá Prinsa-stræti, Princes Street, aðalverslunargötunni og einhverri hinni fegurstu í Evrópu, er óviðjafnanleg sýn til kastalans. Listalíf Edinborgar er magnað enda hýsir hún einhverja frægustu listahátíð veraldar sem alla jafna er haldin síðsumars.

 

Tenglar

Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Höfn

    V4 6°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V5 4°C

    Skýjað
  • Akureyri

    VSV3 5°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit