Áfangastaður: Danmörk / Kaupmannahöfn

Kaupmannahöfn.


Wonderful, wonderful Copenhagen, söng Danny Kaye í frægri söngvamynd frá sjötta áratugnum um öndvegishöfund Dana, H.C. Andersen, og í öllum aðalatriðum stendur Kaupmannahöfn enn undir því að vera yndisleg borg. Hún á einnig stærri hlut í hjörtum og vitund Íslendinga sem hin gamla höfuðborg landsins en nokkur önnur erlend borg og þarna eiga Íslendingar að fornu og nýju mörg sporin. Þannig hefur tekist til við uppbyggingu Kaupmannahafnar að miðborgin, innri kjarninn, er í senn auðrataður og aðlaðandi þar sem miðaldamannvirki og perlur í rokkokkóstíl berjast um athygli ferðamannsins ásamt síkjum sínum sem mörgum finnst minna á Amsterdam.

Íbúarnir eru almennt glaðværir og gestrisnir. Danskur matur, smörrebrauðið, er hafður í hávegum af Íslendingum og reyndar fleirum því að Kaupmannahöfn hefur löngum haft það orð á sér að vera höfuðborg norðursins fyrir matgæðingana. Í borginni úir og grúir af alls kyns veitingastöðum, ekki bara af danska skólanum, og hún státar af flestum Michelin-stjörnugæddum veitingastöðum allra norrænna borga, ólgandi næturlífi og skemmtigörðunum Tívolí og Bakken ásamt ótal sögufrægum stöðum sem er ómaksins vert að heimsækja.




Tenglar

Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Höfn

    V4 6°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V5 4°C

    Skýjað
  • Akureyri

    VSV3 5°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit