Áfangastaður: Frakkland / París

París.

Löngum hefur stafað ævintýraljóma af París, höfuðborg Frakklands. Hún er sannkölluð heimsborg og háborg menningar, lista og tísku, mekka matgæðinganna og þannig mætti lengi telja. Það er því ekki að undra að París laðar til sín fleiri ferðamenn en flestir staðir í veröldinni enda haft orð á sér fyrir að vera fegurst og rómantískust allra borga og stundum kölluð borg ljósanna. Borgin stendur á Signubökkum, á sér langa sögu og urmul af sögufrægum byggingum. Um 2,2 milljónir manna búa á svæði 1 eða miðborginni en aðrar 9,9 milljónir í næstu hverfum við og París er því með fjölmennstu borgum.

Tenglar

Athugasemdir:
5. júní kl. 15:46

Það er æðislegur lítill veitingastaður í Montmartre sem heitir Le Petite Canard (litla öndin). Þar er öndin í öndvegi! Gólfin halla og metróið hristir upp í staðnum á ca. korters fresti en það er bara partur af stemmningunni. Mæli með honum.

Páll Thayer
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Höfn

    V4 6°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V5 4°C

    Skýjað
  • Akureyri

    VSV3 5°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit