Áfangastaður: Ísland / Ásbyrgi
Ásbyrgi er hamrakví í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum, Kelduneshreppi í Norður-Þingeyjarsýslu og er eitt af mestu náttúruundrum Íslands. Það er allt að 3,5 km á lengd inn í botn og um 1,1 km á breidd í mynni þess og helst svipuð breidd um þrjá km inn eftir því. Fyrstu tvo km er byrgið klofið af Eyjunni, miklu standbergi, sem er um 250 m á breidd og skiptir Ásbyrgi í tvennt. Hamraveggirnir eru 90-100 m háir og eru lægstir fremst en hækka þegar innar dregur.
Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram um tilurð þessarar hamrakvíar en líklegust er sú að hún hafi myndast þegar tvö hamfarahlaup urðu í Jökulsá á Fjöllum, hið fyrra fyrir um 8-10 þúsund árum og hið síðara fyrir um 3 þúsund árum. Þjóðsagan skýrir þetta náttúrufyrirbæri á annan hátt. Sagan segir að þarna hafi Sleipnir, hestur Óðins, stigið fast niður fæti þegar hann var á ferð sinni um lönd og höf. Ásbyrgi sé því hóffar Sleipnis og eyjan í miðjunni sé far eftir hóftunguna. (Heimild Wikipedia)
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Höfn
V4 6°C
-
Kirkjubæjarkl.
V5 4°C
-
Akureyri
VSV3 5°C








