Áfangastaður: Ísland / Geysir

Við Geysi

Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt fárra sem þekkt var í árhundruð. Geysir gefur erlendum hverum nafn, „geyser”, og hverahrúður er á erlendum málum oft kallað „geyserite”. Fjölmargir hverir og laugar eru á svæðinu og eru goshverirnir Geysir og Strokkur þekktastir. Marteinslaug er friðlýst sem fornminjar en þar var reist torfsundlaug og var þar sundkennsla fyrir börn í sveitinni fram á síðustu öld. Árið 1894 keypti breskur maður hluta hverasvæðisins og rukkaði hann þá fyrir aðgang að því. Síðar gaf hann vini sínum svæðið. Árið 1935 keypti Sigurður Jónasson landið aftur og gaf það íslensku þjóðinni. Eftir að Geysissvæðið var girt af náði gróðurinn sér og eru þar þekktar yfir 125 tegundir háplantna og yfir 20 mosategundir.
Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á svæðinu til lengri tíma, m.a. á goshegðun Geysis og Strokks. (Heimild Umhverfisstofnun)

Nánar

Á ensku

 

Úr greinasafni Morgunblaðsins

Íslandsheimsókn Danakonungs árið 1907

Geysir gaus 25-30 m háu gosi

Geysir ekki verndaður

Tenglar

Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

mánudagur | þriðjudagur | miðvikudagur

  • Akureyri

    V4 5°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V3 3°C

    Alskýjað
  • Bolungarvík

    VSV5 4°C

    Alskýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit