Áfangastaður: Ísland / Hornstrandir
Hornstrandafriðland var stofnað árið 1975 og nær yfir nyrsta hluta Vestfjarðakjálkans. Auk hinna eiginlegu Hornstranda nær friðlandið yfir Aðalvík og nágrenni, norðurhluta Jökulfjarða að botni Hrafnsfjarðar og suður að Skorarheiði og botni Furufjarðar. Fyrrum var einnig venja að telja strandlengjuna að sýslumörkum við Geirólfsgnúp, sunnan við Reykjafjörð og Sigluvík, með Hornströndum og því eru Þaralátursfjörður og Reykjafjörður á Ströndum einnig hafðir með í þessum hluta Vestfjarðavefjarins. Á Hornströndum er stórbrotin náttúrufegurð. Snarbrött blágrýtisfjöll sem mörg hver ná upp í 500-700 metra hæð einkenna landslagið, skorin í sundur af fjörðum, víkum og dölum. Við ströndina hefur sjórinn séð um að móta landslagið og inn til landsins hafa skriðjöklar skilið eftir sig skörð í hrjóstrugu hálendinu. Fuglar, selir og refir eiga þarna friðland. Áður fyrr var allnokkur byggð á Hornströndum og víða í fjarðarbotnum og dölum er að finna minjar um atvinnu- og byggðasögu svæðisins. (Heimild Vestfjarðavefurinn)
Nánar
Úr greinasafni Morgunblaðsins
Dansað af hjartans list á hjara veraldar
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Höfn
V4 6°C
-
Kirkjubæjarkl.
V5 4°C
-
Akureyri
VSV3 5°C








