Áfangastaður: Ísland / Jökulsá á Fjöllum
Jökulsárgljúfur og umhverfi þeirra hafa heillað margan ferðalanginn. Fossasamtæða Jökulsár á Fjöllum með Selfoss, Dettifoss, Hafragilsfoss og Réttarfoss á sér fáa líka á jörðinni. Stórkostlegt umhverfi Jökulsárgljúfra er mótað af vatni, eldum og ís. Gífurleg hamfarahlaup eru talin hafa myndað og mótað gljúfur, gil, klappir og byrgi. Frægast þeirra er Ásbyrgi.
Hljóðaklettar eru innviðir fornra eldstöðva sem Jökulsá hefur sópað öllu lausa gosefninu í burtu en litlu norðar standa Rauðhólar, hinir upprunalegu gjallgígar.
Í Hólmtungum fara saman miklar andstæður, ótal lækir og lindir renna þar út í beljandi, aurugt stórfljótið. Í skjóli hamra og kletta þrífst fjölbreytt samspil gróðurs og dýralífs. Jökulsá á Fjöllum á upptök sín í Vatnajökli og rennur til sjávar í Öxarfjörð.
Við hálendisbrúnina lækkar landið og áin steypist í stórum fossum niður í gljúfrin sem eru við hana kennd. Jökulsárgljúfur eru ein stærstu og hrikalegustu árgljúfur á Íslandi, um 25 km löng, ½ km á breidd og dýptin víða um eða yfir 100 m. (Heimild kelduhverfi.is).
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C








