Áfangastaður: Ísland / Landmannalaugar
Landmannalaugar er íslensk laug og vinsæll ferðamannastaður á Fjallabaksleið nyrðri austur af Heklu. Vegur þangað er aðeins fær að sumarlagi. Mikill jarðhiti er í Landmannalaugum og vinsæl náttúruböð. Jarðhitinn tengist einu mesta háhitasvæði landsins, Torfajökulssvæðinu. Landmannalaugar eru rómaðar fyrir náttúrufegurð og litríkt berg, þar er mikið um líparít og líparíthraun, hrafntinnu o.fl. Vinsæl gönguleið, Laugavegurinn, liggur milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Vanalegt er að ganga þá leið á fjórum dögum en stundum er bætt við ferð allt til Skóga yfir Fimmvörðuháls milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Ferðafélag Íslands rekur skála í Landmannalaugum og þar er skálavörður að sumri. Ferðafélagið reisti fyrst sæluhús í Landmannalaugum árið 1951 en núverandi hús er að stofni til frá 1969. Það stendur í um 600 metra hæð við jaðar Laugahrauns og þar nálægt eru heitar uppsprettur sem vinsælar eru til baða. (Heimild Wikipedia)
Tenglar
- Á ensku
- Seiðmagn Landmannalauga
- Að baki Mýrdalsjökuls er mikið ævintýraland
- Fínt krydd í hlaupaflóruna
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Höfn
V4 6°C
-
Kirkjubæjarkl.
V5 4°C
-
Akureyri
VSV3 5°C








