Áfangastaður: Ísland / Lónsöræfi
Austan Vatnajökuls eru Lónsöræfi. Í Lónsöræfum er stórbrotin náttúra sem vert er að upplifa. Þar er mikil litadýrð í bergi sem má rekja til þess að þar er gömul megineldstöð og í berginu er einnig að finna mikið af holufyllingum og fallegum kristöllum. Svæðið er sundurskorið af giljum og gljúfrum en þar er gróður einnig talsverður. Algengt er að hreindýr sæki á svæðið.
Vegna sérstæðrar náttúru svæðisins voru Lónsöræfi friðlýst árið 1977 og er svæðið eitt af stærstu verndarsvæðum landsins. Lónsöræfi eru vinsælt göngusvæði og þykir bæði fagurt og áhugavert á að líta. (Heimild Ríki Vatnajökuls)
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Höfn
V4 6°C
-
Kirkjubæjarkl.
V5 4°C
-
Akureyri
VSV3 5°C








