Áfangastaður: Ísland / Mývatn
Mývatnssveit er þekkt fyrir einstaka náttúrufegurð og fjölskrúðugt fuglalíf. Eldsumbrot hafa mótað landslagið frá örófi alda, þar er hiti í jörðu, heitir hverir, gufa og uppsprettur sem heimamenn og gestir hafa baðað sig í frá landnámsöld. Sveitin er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Mývatn er í 277 m. hæð y.s. og er fjórða stærsta vatn landsins, 36,5 km². Hólmar og eyjur eru um 50 talsins og mesta dýpi aðeins um 5 metrar. Vatnið dregur nafn sitt af aragrúa af mýflugum sem þar eru, bitmýi og rykmýi sem er stór hluti af fæðu silunga og ýmissa fugla. Fuglalífið er fjölskrúðugt, talið er að hvergi í heiminum séu fleiri andategundir. Húsöndin verpir hvergi annars staðar í Evrópu og þéttasta straumandabyggð jarðar er við ofanverða Laxá.Víða eru merktar gönguleiðir og áhugaverðir staðir eru merktir við þjóðveginn, enda er margt að skoða og auðvelt að gleyma sér við plöntu- og fuglaskoðun í undurfagurri náttúrunni. (Heimild jardbodin.is)
Nánar
Á ensku
Úr greinasafni Morgunblaðsins
Sveiflur í lífríki Mývatns útskýrðar
Garðlögin miklu í Suður-Þingeyjarsýslu
Torfveggirnir gefa annað bragð
Ævintýraleg stund í Bjarnarflagi
Skrifa ferðahandbækur um Ísland
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C








