Áfangastaður: Ísland / Snæfellsjökull

Frá Snæfellsjökli.

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er vestast á Snæfellsnesi, í Snæfellsbæ. Mörk þjóðgarðsins liggja um jaðar Háahrauns í landi Dagverðarár, um austurjaðar Snæfellsjökuls og norðurmörkin liggja á milli Gufuskála og Hellissands. Fjölbreytileiki jarðmyndana er óvíða jafnmikill og á Snæfellsnesi. Snæfellsjökull er kjarni eldvirkninnar í þjóðgarðinum en verndargildi þjóðgarðsins felst einkum í mörgum og fjölbreyttum gosmyndunum. Snæfellsjökull skipar auk þess sérstakan sess í huga fólks enda kraftur Jökulsins margrómaður. Sérstaða þjóðgarðsins felst meðal annars í nálægð við sjóinn og afar fjölbreyttri strandlengju en þjóðgarðurinn er sá fyrsti hér á landi sem nær í sjó fram. Samspil manns og umhverfis er áberandi því meðfram ströndinni má víða sjá merkar menningarminjar tengdar búsetu og sjósókn frá tímum árabátaútgerðar og vitna þær um lífsbaráttu genginna kynslóða. Hraunin á svæðinu eru gljúp svo mjög lítið vatn er á yfirborði. Þrátt fyrir það þekur mosi og lággróður landið milli fjalls og fjöru og víða er blómskrúð og lágvaxnar trjáplöntur í hraungjótum. Sjófuglar eru í björgum þjóðgarðsins og söng mófugla má heyra víða. Ef heppnin er með má rekast á ref á ferli eða sjá hval undan ströndinni. (Heimild Vísindavefur HÍ)

Nánar

Á ensku

 

Úr greinasafni Morgunblaðsins

Nýir eigendur endurnýja tækjakostinn

Töfrum slungið Snæfellsnes 

Gengið upp jökulinn

Heilt safn af ótrúlegu fólki

Barnastundir og gönguferðir

None

Tenglar

Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Herferð gegn handfarangri

Herferð gegn handfarangri

Öryggisverðir á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi stoppa alla þá sem ætla með of mikinn handfarangur um borð Meira
Stundvísitölur: Aldrei stundvísari

Stundvísitölur: Aldrei stundvísari

Tímasetningar í millilandaflugi hafa ekki áður haldist jafn vel eins og þær gerðu á seinni hluta aprílmánaðar Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

föstudagur | laugardagur | sunnudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VSV2 10°C

    Skýjað
  • Stórhöfði

    V5 6°C

    Léttskýjað
  • Egilsst.

    VNV3 4°C

    Léttskýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit