Áfangastaður: Ísland / Þórsmörk

Frá Þórsmörk.

Þórsmörk er svæði norðan Eyjafjallajökuls og vestan Mýrdalsjökuls. Þórsmörk afmarkast af Mýrdalsjökli í austri, Krossá í suðri og Markarfljóti og Þröngá í norðri. Nafn sitt dregur Þórsmörk af germanska guðinum Þór. Blaðmosar, burknar og birkitré vaxa þar og er gróðurfarið mjög fjölbreytt. Meginástæða gróðursældar í Þórsmörk er sú að svæðið er náttúrulega varið fyrir búfé af torfærum ám og jöklum.

Krossá er jökulá og er því mjög köld og breytir sér oft. Yfirferð getur verið hættuleg og hafa nokkur banaslys orðið í ánni. Brú hefur verið gerð fyrir fótgangendur. Veðurfarið er gott og hlýtt, betra en gengur og gerist á Suðurlandi vegna hárra fjalla sem umkringja svæðið og vernda það fyrir úrkomuskýjum.

Þórsmörk er mjög vinsæl meðal útivistarfólks og þar er fjöldi gönguleiða. Það er til dæmis mögulegt að ganga á jökulinn, ganga hinn þekkta Laugaveg til Landmannalauga eða þá að ganga í Stakkholtsgjána eða um Fimmvörðuháls til Skóga. Einnig eru ákaflega fjölbreyttar styttri gönguleiðir innan svæðisins og mætti þar sem dæmi nefna göngu í Litla Enda, Stóra Enda eða á Valahnúk eða úr Langadal í Húsadal. (Heimild Wikipedia)

 Nánar

 Á ensku

Tenglar

Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Höfn

    V4 6°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V5 4°C

    Skýjað
  • Akureyri

    VSV3 5°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit