Áfangastaður: Ísland / Vaglaskógur
Fnjóskadalur er gróðursæll dalur og víða skógi vaxinn, enda merkir orðið fnjóskur þurrt viðarsprek. Um miðbik dalsins, austan Fnjóskár, er Vaglaskógur, einn fegursti og stórvaxnasti birkiskógur landsins.
Vaglaskógur er meðal fjölsóttustu skóga á Íslandi. Árlega koma þúsundir ferðamanna til að njóta dvalar í Vaglaskógi, enda hann kjörinn til útivistar að sumri sem vetri. Í skóginum eru vel skipulögð útivistar- og tjaldsvæði sem eru vel sótt af ferðamönnum. Fjöldi merktra gönguleiða er um Vaglaskóg og þar er margt að skoða, bæði náttúru- og menningarminjar. Áhugafólki um skógrækt má benda á trjásafnið ofan gróðrarstöðvarinnar og Arnþórslund skammt frá Mörk. Skammt frá Arnþórslundi eru fallega hlaðnar tóftir gamalla beitarhúsa frá Vöglum. (Heimild norðausturland.is)
Nánar
Á ensku
Úr greinasafni Morgunblaðsins
Draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg
Mikill ferðamannastraumur í skóglendi Fnjóskadals
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Höfn
V4 6°C
-
Kirkjubæjarkl.
V5 4°C
-
Akureyri
VSV3 5°C








