Áfangastaður: Kanada / Toronto
Toronto er miðstöð ensk-kanadískrar menningar en um leið er þar heimkynni fjölda þjóðarbrota sem setja sterkan svip á mannlífið og einstök hverfi. Sagt hefur verið að hægt sé að fá sér morgunverð í Ísrael, hádegisverð í Kína, síðdegiskaffi á Ítalíu og kvöldverð í Grikklandi án þess að fara nokkurn tíma út fyrir borgarmörk Toronto. Í kynningarefni Icelandair fyrir Toronto eru nefnd áhugaverð söfn, hið sérstæðasta að líkindum The Bata Shoe Museum þar sem eru 10.000 skópör til sýnis, hin elstu þeirra frá tímum faraóanna í Egyptalandi. Meðfram Ontariovatni sé Harbourfront þar sem er margt að skoða og upplifa sér til skemmtunar og að enginn komi til Toronto án þess að fara upp í Canadian National Tower, CN-turninn, hæsta mannvirki í heimi. Sagt er að Toronto státi einnig af frábærum verslunum og fyrsta flokks veitingastöðum þar sem má kynnast hinu besta í matargerðarlist frá öllum heimshornum.
Tenglar
- Toronto hjá Ferðaheimi
- Upplýsingar heimamanna um Toronto á ensku
- Toronto á Wikipedia
- Allt um Toronto á Wikitravel á ensku
- Kanada á Wikipedia
- Upplýsingar heimamanna um Kanada á ensku
- Kanada hjá Ferðaheimi
- Hagnýtar upplýsingar VUR um Kanada
- Brimandi borg þar sem allt er mögulegt
- Garndræsan; net-prjónakona númer eitt
- Tekist á um völdin í skáldsögum Margaret Atwood
- 186 ekrur og hænsni
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C








