Áfangastaður: Noregur / Ósló

Osló.

Milli Oslófjarðar og gróðri vaxinna hæða Oslomarka liggur höfuðborg Noregs, Osló, og er talin elst höfuðborga á Norðurlöndum. Þótt stundum sé talað um Osló í flimtingum sem stærsta sveitaþorp heims  er þetta notaleg og falleg borg enda bæjarstæðið fagurt. Íbúar eru um hálf milljón en tvöfalt fleiri ef næsta nágrenni er talið með. Grónar hæðirnar umhverfis borgina eru útivistarparadís allan ársins hring enda Oslóbúar líkt og flestir Norðmenn mikið útivistarfólk. Borgin sjálf státar af fjölmörgum markverðum stöðum og sögulegum byggingum, nýjum og gömlum en ekki endilega mjög fornum þar sem eldsvoðar léku borgina illa á 17. og 18. öld.
Osló nútímans iðar af fjölbreytilegu mannlífi, veitingahúsum, skemmtanalífi auk útivistar sem áður er nefnd og kemur fjölmörgum í opna skjöldu að þessu leyti þar sem ýmsir hafa ekki endilega haft mjög háar hugmyndir um borgina fyrirfram.
 



Tenglar

Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.
Skráðu þig inn
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit