Góðir golfvellir á landsbyggðinni

Golfvallahönnuðurinn Edwin Roald Rögnvaldsson. stækka

Golfvallahönnuðurinn Edwin Roald Rögnvaldsson. Júlíus Sigurjónsson

Það er hægur vandi á Íslandi að sameina ferðalög um landið og gólfástríðuna, segir Edwin Roald Rögnvaldsson, golfvallahönnuður og höfundur bókarinnar Golfhringur um Ísland, ljósmyndabók sem kom út árið 2002.

„Það er svo merkilegt með Ísland að það er golfvöllur í nánast hvaða plássi sem þú kemur til úti á landi,“ segir hann. „Ég hef hvergi rekist á neitt ámóta erlendis og hef ég þó farið nokkuð víða. Útlendingar eru líka mjög hissa á þessu. Nýlega var ég til dæmis á Bíldudal í heimsókn hjá golfklúbbnum þar og þá sögðu klúbbfélagar mér frá því að þarna hefði verið erlendur maður að vinna að ákveðnu verkefni og hann hefði orðið þrumu lostinn af undrun þegar honum var sagt að þarna væri golfvöllur í þessu liðlega 200 manna þorpi.“

Að sögn Edwins eru golfvellir eða klúbbar innan Golfsambandsins rétt liðlega 60 en fáeinir að auki þannig alls eru golfvellirnir vel á sjöunda tuginn. „Þeir eru gífurlega fjölbreyttir af ýmsum ástæðum. Meðal annars af því hvernig þeir hafa verið gerðir - iðulega af eldheitum áhugamönnum í viðkomandi bæ sem hafa ekki haft mikið fé milli handanna. Sem betur fer liggur mér við að segja því að þá hefur áherslan verið lögð á að finna hentug svæði eða náttúruleg stæði fyrir einstakar brautir og lagt þetta þannig í landið. Með því færðu þennan fjölbreytileika sem mannsheilinn nær ekki að gera, hafi hann fullt frelsi og fullar hendur fjár.“

 Edwin segir þetta vera þróunina í golfvallagerð á heimsvísu. „Það hafa verið að koma fram nýir golfvellir úti í hinum stóra heimi þar sem menn hafa einmitt verið að ganga nokkuð langt í þessu, einfaldleikanum. Þetta eru góðir vellir þar sem hentugt svæði hefur verið valið. Þetta eru vellir sem vakið hafa mikla athygli og fengið mikla viðurkenningu á aðeins örfáum árum þegar yfirleitt tekur drjúgan tíma fyrir golfvelli að vinna sér sess.“

Edwin segir að 18 holu vellir hér á landi séu um 14 talsins. Þeim hafi heldur verið að fjölga nokkuð síðustu árum, aðallega með stækkun valla sem fyrir voru. Ef litið er á velli í þessum flokki og horft til gæða eða náttúrlegs umhverfis segir hann að Vestmannaeyjavöllurinn sé alltaf í nokkrum sérflokki í sínum huga.

„Umhverfið er auðvitað einstakt. Hann er líka oftast í mjög góðu standi enda fljótur til á vorin og Eyjamenn staðið sig vel í að halda honum við.“

Edwin segist þó fyrir sitt leyti ekki síður vera hrifinn af minni völlunum. „Að ýmsu leyti eru það okkar bestu golfvellir enda þótt klúbbarnir séu oft á tíðunum með litla peninga og vanti jafnvel tæki til að annast þá, en í grunninn eru þarna margir áhugaverðustu vellirnir og leynast á hinum ólíklegustu stöðum.“

Kreppan bítur ekki á golfíþróttinni hérlendis

Ekki fer framhjá neinum að golfáhuginn á Íslandi hefur nánast sprungið út á síðustu árum, og Edwin segir það merkilegt í kreppunni hér heima fyrir þá haldi golfíþróttin sínu að minnsta kosti, jafnvel sé um fjölgun að ræða. Á sama tíma eigi golfíþróttin á heimsvísu í gríðarlegum erfiðleikum, til dæmis í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem sé mikil fækkun. Í Bandaríkjunum séu margir golfklúbbar á barmi gjaldþrots

„Það má eiginlega líkja golfiðnaðinum víða erlendis við íslensku bankana, menn misstu sig í góðærinu, íburðurinn varð alltaf meiri og meiri og golfvellirnir urðu að vera svona og svona til að standast samkeppnina.  Til að mæta þessu varð að hækka vallargjöldin, ástundun íþróttarinnar varð dýrari og dýrari. Hún hætti að verða almenningsíþrótt, eins og hún er hér þar sem rukkuð eru hófleg gjöld og þegar allt kemur til alls stendur golfíþróttin hér mun betur að vígi að standa af sér svona ef efnahagsþrengingar heldur en víðast hvar annarsstaðar.“

En hvernig ánetjaðist Edwin sjálfur golfíþróttinni? „Ég byrjaði í gólfi 12 ára. Þá hafði ég séð Severiano Ballesteros í sjónvarpinu og ákvað að þetta væri eitthvað sem ég ætti að gera. En áður en ég byrjaði fór ég í bókasafnið og náði mér í bækur um golf. Í þeim sá ég m.a. teikningar af golfvöllum þannig áður en ég sló fyrstu golfkúlunni var ég farinn að teikna golfvelli.“

Golfvallahönnun blundaði síðan alltaf í honum meðan hann var í námi og síðar íþróttablaðamennsku hér á Mogganum. Hann skráði sig reyndar í sagnfræði í háskólanum en áður en áður en kom að fyrsta tímanum var hann búinn að vinda sínu kvæði í kross og hélt til Englands, til Guildford-borgar. Þar nam hann í tvö ár allt sem viðkom golfi og bætti síðan tveimur og hálfu ári við þar sem hann einbeitti sér að golfvallahönnun. Hún hefur verið hans lifibrauð síðan.

„Maður þurfti auðvitað að sýna svolitla þolinmæði fyrst eftir námið,“ svarar hann þegar hann er spurður út í hvernig hafi gengið að fá verkefni. „En um 2006 fór ég að fá svolítið af verkefnum að utan, einkanlega frá A-Evrópu og rússneskumælandi löndum, svo að ég sett kraft í það að markaðssetja mig á þessum slóðum. Ég komst í kynni við gott fólk þarna, eins og í Litháen, Búlgaríu og síðast en ekki síst í Úrkaínu. Ég hef þannig verið miklu meira á þessum slóðum en hér heima þar til í ár. Núna hef ég verið á fullu hér heima meðan A-Evrópa ber sig heldur aumlega í kreppunni og hægt hefur á ýmsum verkefnum sem ég hef verið að vinna þar.“

Verkefnin hér á landi hafa verið af ýmsum toga, endurhönnun valla eða brauta, stækkanir og fleira af því tagi. „Golfvöllur er aldrei „tilbúinn“ í vissum skilningi því að hann er lifandi vistkerfi, ert alltaf að breytast og svo breytast forsendur, til dæmis vegna fjölgunar í klúbbunum. Þannig að það er búinn að vera rosalegur kraftur í þessu, ekki síst úti á landi. Strax eftir bankahrun auglýsti ég að ég væri tilbúinn að gefa þessum smærri klúbbum 100 vinnutíma á þessu ári og fékk mikil viðbrögð. Eitthvað um 20 aðilar sóttu um og ég hef verið mikið á ferðinni bæði vestur og norður. Marga þessara valla hafði ég ekki séð frá því að ég gaf út Golfhringinn um Íslands 2002. Það var bara mjög gaman að sjá hvað hafði gerst á þessum sjö árum og hvað mikill hugur er í mönnum.“

Við fengum Edwin til að nefna 10 uppáhalds velli sína utan
höfuðborgarsvæðisins. Er val Edwins einskorðað við velli með færri holur en
18, en þó með einni undantekningu.

Golfhringurinn um Ísland

Ég spilaði þennan völl í Sveitakeppni GSÍ í fyrra og ...
Bárarvöllur við Grundarfjörð

Ég spilaði þennan völl í Sveitakeppni GSÍ í fyrra og hafði af því gaman þótt árangurinn hefði látið á sér standa. Ég hafði skoðað völlinn nokkrum árum áður og þótti hann áhugaverður, en hann gerði ekkert nema batna við frekari kynni. Nokkrar brautirnar eru lagðar yfir mjög áhugavert land til golfleiks, t.d. 3., 5. og 6. braut. Til að ná árangri á Bárarvelli þarf að slá vel útfærð og þaulhugsuð högg. Myndin er af 3. flöt.

Ég hef áður nefnt 7. braut á Meðaldalsvelli (sjá mynd) ...
Meðaldalsvöllur við Þingeyri í Dýrafirði

Ég hef áður nefnt 7. braut á Meðaldalsvelli (sjá mynd) og sagt hana eina af uppáhalds brautum mínum á Íslandi. Ég var í Dýrafirði í vor og rann þá upp fyrir mér að Meðaldalsvöllur hefur upp á margt fleira að bjóða. Á vellinum eru fáir veikleikar. Golfklúbburinn Gláma er mjög fámennur og er það lyginni líkast hvernig þeim gengur að hirða völlinn.

Syðridalsvöllur er sá golfvöllur á Íslandi sem kemst næst því ...
Syðridalsvöllur í Bolungarvík

Syðridalsvöllur er sá golfvöllur á Íslandi sem kemst næst því að vera ekta strandvöllur eða “links” eins og þeir eru nefndir upp á enskuna. Vissulega eigum við marga velli við sjávarsíðuna, en alla skortir þá a.m.k. eitt þýðingarmikið einkenni links-valla, þ.e. sendinn jarðveg og/eða ríkjandi vingul-grös í sverðinum. Aðrir íslenskir vellir sem komast nærri þessu að hluta til eru golfvöllurinn í Staðarsveit, sem gistiheimilið Langaholt rekur, og völlurinn í Þorlákshöfn. Myndin er af 3. braut Syðridalsvallar, sem er erfið par-3 hola.

Kom mér mjög á óvart er ég sá hann fyrst ...
Háagerðisvöllur á Skagaströnd

Kom mér mjög á óvart er ég sá hann fyrst árið 2002, er ég vann að bók minni, Golfhringur um Íslandi. Hér er um að ræða mjög heilsteyptan golfvöll sem var í mjög góðu ástandi síðast þegar ég sá hann. Upphaf hans er fremur óvenjulegt, par 3-hola þar sem flötin sést ekki frá teig (sjá mynd), en einhverra hluta vegna fellur hún í kramið.

Þeir eru fáir, ef nokkrir, níu holna vellir á Íslandi, ...
Hlíðarendavöllur á Sauðárkróki

Þeir eru fáir, ef nokkrir, níu holna vellir á Íslandi, sem slá Hlíðarendavelli við. Hann er mjög alhliða og krefjandi. Gegnum árin hafa þó nokkrir góðir, ungir kylfingar komið frá Sauðárkróki og skal engan undra. Þær eru ekki margar, brautirnar að Hlíðarenda, sem skera sig úr, aðallega vegna þess hversu fáir veikleikar eru á vellinum.

Katlavöllur er ákaflega sérstakur. Ég þekki engan líkan honum á ...
Katlavöllur á Húsavík

Katlavöllur er ákaflega sérstakur. Ég þekki engan líkan honum á landinu. Þar kemur lyngið mikið við sögu og er eitt helsta einkenni svæðisins. Margir þekkja 4. brautina, eða Lautina eins og hún heitir. Hún er umdeild, en vissulega eftirminnileg og hefur leikið margan kylfinginn grátt.

Ég nefni þennan völl, auk annars, sem ég hef sjálfur ...
Silfurnesvöllur á Höfn í Hornafirði

Ég nefni þennan völl, auk annars, sem ég hef sjálfur unnið við. Það á við báða vellina að umhverfi þeirra er einstakt. Silfurnesvöllur liggur á tveimur nesjum og tengist hann með notkun hólma úti í víkinni þar á milli. Úti í hólmanum er t.d. 8. flötin, par 3, sem slegið er á af öðru nesinu. Í hólmanum eru einnig teigar á 4. og 9. braut, sem liggur hvor á sínu nesinu og krefjast þess að kylfingurinn slái allnokkra vegalengd yfir sjó. Allar brautir vallarins liggja við ströndina, nema ein, og veit ég ekki önnur dæmi um golfvöll þar sem svo hátt hlutfall brauta liggur við sjó. Myndin er af 2. braut, par-3 holu sem var áður sú þriðja.

Haukadalsvöll hannaði ég frá grunni og var hann opnaður árið ...
Haukadalsvöllur við Geysi

Haukadalsvöll hannaði ég frá grunni og var hann opnaður árið 2006. T.d. vegna staðsetningar sinnar, við eina af helstu náttúruperlum landsins, kemur óspillt náttúra mikið við sögu. Staðarhaldarinn Einar Tryggvason hefur staðið sig frábærlega við umhirðu þessa vallar og er það ekki síst þess vegna sem mér þykir jafn vænt um hann og raun ber vitni, þ.e. um völlinn.

Hvergerðingar hafa staðið sig virkilega vel við uppbyggingu Gufudalsvallar og ...
Gufudalsvöllur við Hveragerði

Hvergerðingar hafa staðið sig virkilega vel við uppbyggingu Gufudalsvallar og var ég mjög hrifinn af vellinum nú er ég skoðaði hann í maí síðastliðnum. Hann er orðinn mjög skemmtilegur golfvöllur og eru veikleikar mjög fáir. Það er í raun ekki nema 5. brautin sem ég tel þarfnast einhverra lagfæringa sem tekur að nefna. Myndin er tekin upp til baka eftir 2. braut, sem er að mínu viti ein af bestu par-5 holum landsins.

Ég vil gera undantekningu á reglunni hér og nefna Vestmannaeyjavöll ...
Vestmannaeyjavöllur

Ég vil gera undantekningu á reglunni hér og nefna Vestmannaeyjavöll til sögunnar. Hver kylfingur á Íslandi þarf að mínum dómi að upplifa þann völl. Þótt umhverfið sé stórkostlegt, þá er sjálfur völlurinn mjög góður einnig. Ég er ekki frá því að fyrri níu holur vallarins geti talist bestu níu holur landsins. Þar af eru brautir nr. 4 til 6 líklega elstu golfbrautir Íslands sem enn eru í notkun og það er merkilegt að þær skuli enn vera meðal þeirra bestu á landinu. Ljósmyndin er af 18. flöt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Þráðlaust net í Íslandsflugi

25.5. Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit