Fjölmenni á leið til Eyja

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
mbl.is Eftir Jón Pétur Jónsson

Það var ys og þys á Reykjavíkurflugvelli í dag enda margir á leið út á land um verslunarmannahelgina. Flestir ferðalanganna voru á leið á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og hefur Flugfélag Íslands flogið með fjölmarga farþega í dag, en á morgun verða þeir tæplega 1.000 talsins.

„Það er bara búið að ganga ljómandi vel. Það eru cirka sex brottfarir í dag. Á morgun eru um 13, eða svo,“ segir Snædís Kjartansdóttir, þjónustustjóri Flugfélag Íslands. Hún segir að mikill farangur fylgi farþegunum, en allt hafi gengið vel og allur farangur hafi komist til skila. Engin vandamál hafi komið upp enda allir í þjóðhátíðarskapi.

„Það eru því miður allar vélar fullbókaðar til Eyja og frá Eyjum á mánudagsmorguninn,“ segir Snædís jafnframt, en um það bil 30 vélar munu fljúga frá Vestamannaeyjum á mánudag.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
í fyrradag Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
í fyrradag Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

mánudagur | þriðjudagur | miðvikudagur

  • Akureyri

    V4 5°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V3 3°C

    Alskýjað
  • Bolungarvík

    VSV5 4°C

    Alskýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit