Æsingur á sjóstöng við Grímsey

Ólafur Lárus Egilsson var ánægður með aflann. Ásbjörn Magnússon skipstjóri á Sundhananum frá Drangsnesi fylgist ... stækka

Ólafur Lárus Egilsson var ánægður með aflann. Ásbjörn Magnússon skipstjóri á Sundhananum frá Drangsnesi fylgist með. Ljósmynd/Unnur

mbl.is Eftir Egil Ólafsson

Þú hendir önglunum út í, dregur djúpt að þér ferskt sjávarloftið og bingó; það er kominn fiskur á færið. Já, það er frábær skemmtun að veiða þorsk á sjóstöng og ekki spillir fyrir að geta notið einstakrar náttúrufegurðar við Grímsey á Steingrímsfirði.

Sumir halda að það sé bara ein eyja við Ísland sem ber nafnið Grímsey, en það er misskilningur. Á Steingrímsfirði er líka að finna Grímsey, sem sumir segja að sé best geymda leyndarmál Strandanna. Í Grímsey er stærsta lundavarp í einni eyju við Ísland. Lundavarpið í Vestmannaeyjum er stærra, en það dreifist á nokkrar eyjur.

Eyjan er kennd við Grím Ingjaldsson sem kom í landaleit frá Noregi og hafði vetursetu í eyjunni. Í Grímsey var fyrrum býli og fram á 20. öld höfðu menn vetursetu á eyjunni og verbúðir. Refir voru um skeið í Grímsey á fyrri hluta 20. aldar. Yrðlingar voru fluttir út í eyjuna fyrri hluta sumars og sleppt þar, en síðan veiddir að vetrinum þegar skinnin voru fallegust og verðmætust. Fóður varð að flytja til refanna að einhverju leyti en annars fæddu þeir sig sjálfir.

Það er ekki síst lundinn sem dregur ferðamenn að Grímsey. Erlendir ferðamenn hafa gríðarlegan áhuga á lundanum og mynda hann bak og fyrir þegar þeir taka sér ferð með Ásbirni Magnússyni skipstjóra frá Drangsnesi sem hefur verið með daglegar ferðir út í Grímsey. Lundinn hverfur úr eyjunni í byrjun ágúst, en skarfaungarnir eru lengur í hreiðrum sínum og Ásbjörn siglir bát sínum, Sundhananum, alveg upp að hreiðrinu. Ungarnir eru orðnir vanir heimsóknum Sundhanans og kippa sér ekki upp við þó ferðamenn myndi þá í gríð og erg.

Þegar menn eru búnir að horfa nægju sína á fuglana í Grímsey er hægt að grípa sjóstöngina og renna fyrir þorsk. Fyrir þá sem hafa gaman af því að veiða, en hafa ekki þolinmæði til að sitja á árbakka tímunum saman í veikri von um að eitthvað bíti á, er sjóstangaveiði heppilegt sport. Maður er varla búinn að renna önglunum niður á botn þegar það er kominn þorskur á færið.

Með mér í för voru m.a. Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir og Urður Egilsdóttir en þær hafa ekki mikla reynslu af veiðiskap. Báðar ræddu um það áður en lagt var á haf út að þær treystu sér ekki til að drepa fiskinn. Allar efasemdir gleymdust fljótt þegar þorskurinn fór að bíta á og það var eins og eitthvert æði gripi þessar annars rólegu konur. Þær vildu helst ekki hætta þó að þorskarnir væru orðnir um 30 í karinu.

Allt gaman tekur enda. Ásbjörn renndi bátnum upp að litlu bryggjunni í Grímsey og gerði að fisknum með háseta sínum á meðan ferðamennirnir brugðu sér í land, drukku kaffi og skoðuðu sig um. Erfitt getur verið að ganga um eyjuna því hún er sundurgrafin af lundanum.

Það er ekki dýrt að fara á sjóstangaveiði frá Drangsnesi, ferðin kostar 3.000 krónur fyrir manninn. Þetta er ódýrt sérstaklega ef tekið er tillit til þess að þú getur farið heim með glænýjan þorsk sem dugar þér fram yfir jól.

Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir vildi helst ekki hætta að veiða. Ásbjörn hjálpaði henni að losa þorskinn af ...

Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir vildi helst ekki hætta að veiða. Ásbjörn hjálpaði henni að losa þorskinn af önglinum. Ljósmynd/Unnur

Þegar búið var að ná þorskinum um borð þurfti að blóðga og gera að aflanum.

Þegar búið var að ná þorskinum um borð þurfti að blóðga og gera að aflanum. Ljósmynd/Unnur

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

París vinsælli en nokkru sinni

Horft yfir Parísarborg frá Tour Montparnasse
20.2. París hefur lengi verið vinsælasti ferðamannastaður heims en árið 2011 var hún vinsælli en nokkru sinni fyrr, því gistinætur í borginni hafa aldrei verið fleiri. Það má að hluta rekja til verulegrar fjölgunar kínverskra ferðamanna, að sögn Ferðamanna- og ráðstefnustofu Parísarborgar. Meira »

Zurich dýrasta borgin

Sterkur svissneskur franki hefur lyft Zurich á topp listans.
15.2. Zurich er, samkvæmt niðurstöðum nýrra mælinga, dýrasta borg veraldar nú um stundir. Sterkur svissneskur franki hefur veitt borginni byr í seglin og hefur hún nú bolað Tókýó, höfuðborg Japans, úr toppsætinu. Meira »

Iceland Travel hlaut viðurkenninu SAF

Verðlaunin afhent. (f.v.) María Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi SAF, Árni Gunnarsson, formaður SAF, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og ...
16.2. Starfsmenntaviðurkenningu Samtaka ferðaþjónustunnar í ár hlýtur ferðaskrifstofan Iceland Travel. Alls bárust níu tilnefningar til verðlaunanna. Meira »

Keflavíkurflugvöllur sá besti í Evrópu

Keflavíkurflugvöllur.
15.2. Keflavíkurflugvöllur veitti besta þjónustu evrópskra flugvalla með undir 2 milljónum farþega á ári að mati þátttakenda í viðamikilli könnun alþjóðasamtaka flugvalla. Flugvöllurinn fékk raunar flest heildarstig allra evrópskra flugvalla líkt og árið 2009 en taldist nú í nýjum flokki smærri flugvalla sem ekki koma til álita í fyrsta sæti allra flugvalla. Meira »
Stundvísitölur: 19 af 20 brottförum Iceland Express á tíma

Stundvísitölur: 19 af 20 brottförum Iceland Express á tíma

Brottfarartímar á Keflavíkurflugvelli stóðust langoftast á fyrri hluti mánaðarins. Frammistaða Iceland Express er mun betri en áður hefur mælst í stundvísitölum Túrista. Meira
Þrír af fjórum ferðast á eigin vegum

Þrír af fjórum ferðast á eigin vegum

Mikill meirihluti lesenda Túrista ætlar að skipuleggja utanlandsferð sumarsins án aðstoðar ferðaskrifstofu     Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

föstudagur | laugardagur | sunnudagur

  • Reykjavík

    NV4 1°C

    Skýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    VSV3 3°C

    Skýjað
  • Höfn

    SA2 1°C

    Slydduél

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit