Fær Ríó Ólympíuleikana 2016?
Rio de Janeiro og Chicago styrktu stöðu sína í keppninni um að fá að hýsa Ólympíuleikana árið 2016 eftir að hafa komið best út í tæknilegu mati Alþjóða ólympíunefndarinnar á borgunum fjórum sem sótt hafa um að fá að halda leikana.
Alþjóða ólympíunefndin hefur aðsetur í Lausanne í Sviss og sagði í skýrslu í dag að allir fjórir umsækjendurnir væru mjög eftirsóknarverðir. Hins vegar voru í skýrslunni tilteknir ákveðnir ágallar í umsóknum bæði Madrid og Tókýó, hinna borganna tveggja sem keppa um að fá að halda leikanna.
Brasilísku og bandarísku keppinautarnir virðist því hafa forskot á hinar borgirnar tvær eftir heimsókn tækninefndarinnar á vettvang í apríl og maí fyrr á þessu ári. Ágallar voru þó taldir vera á umsóknum beggja borganna sem þóttu koma best út, einkanlega varðandi samgöngumál.
Hvað Tókýó varðar taldi nefndin það ágalla við umsóknina að lítill stuðningur almennings virtist vera við að halda þar leikana og einnig var tilgreint að nefndin hefði komist að því að ýmiss mannvirki sem sögð væru til, ætti í reynd eftir að byggja.
Í umsögn um Madrid er einkum fundið að því að þar vanti upp á skipulag og stjórnun, og að heimamenn geri sér fulla grein fyrir umfangi leikanna.
Alþjóða ólympíunefndin á að ljúka vali sínu á borg þeirri sem hýsir leikana 2016 í október næstkomandi þegar hún fundar í Kaupmannahöfn. Heimildir AFP-fréttastofunnar innan nefndarinnar herma að stuðningur við Ríó sem fyrstu borgina í S-Ameríku til að halda Ólympíuleika, fari vaxandi á sama tíma og það vatni heldur undan Chicago.
Athugasemdir:
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C













Skráðu þig inn