Siglufjörður miðstöð þjóðlaga og þjóðdansa
Siglufjörður verður miðstöð fyrir þjóðdansa og þjóðlagamúsík en Norðurþjóðaverkefnið – North Folk Partnership er undir forystu Fjallabyggðar og dr. Guðrúnar Ingimundardóttur hjá Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Markmið verkefnisins er að þróa arðbæra atvinnugrein sem
byggir á varðveislu, rannsóknum og kynningu á þjóðdönsum og þjóðtónlist, og opna
veglega sýningarsali helgaða þjóðtónlist og þjóðdönsum landanna við norðanvert
Atlantshaf.
Einnig að byggja upp fjölþjóðlega akademíu sem kennir
þjóðtónlist og þjóðdansa í menningarsögulegu samhengi, koma á fót sameiginlegum
gagnagrunni og halda veglega þjóðlagahátíð allra landanna.
Sjá nánar á siglo.is.
Athugasemdir:
Stundvísitölur: 19 af 20 brottförum Iceland Express á tíma
Þrír af fjórum ferðast á eigin vegum
Besta veðrið næstu daga
föstudagur | laugardagur | sunnudagur
-
Reykjavík
NV4 1°C
-
Kirkjubæjarkl.
VSV3 3°C
-
Höfn
SA2 1°C













Skráðu þig inn