Varað við svikamyllu
Neytendasamtökin vara við svikamyllu sem þau hafa heyrt að nokkrir íslenskir neytendur hafi lent í. Um er að ræða tyrkneskt fyrirtæki , www.bookinhotels.com, sem hægt er að panta hótelherbergi í gegnum.
Segir á vef Neytendasamtakanna að fólk hefur pantað herbergi í gegnum þessa síðu og greitt fyrir með kreditkorti. Við komuna á hótelið finnst hins vegar engin bókun, og í kjölfarið þarf fólk að útvega sér aðra gistingu. Mjög erfitt virðist vera að kvarta við fyrirtækið og neytendur hafa ekki fengið endurgreitt. Í öðrum tilvikum hefur fólk, örfáum dögum fyrir áætlaða komu, fengið tölvupóst frá bookinhotels um að því miður hafi þurft að aflýsa bókuninni en endurgreiðsla muni berast innan skamms. Endurgreiðslan berst svo aldrei og kvartanir bera lítinn árangur.
Svo virðist því vera að um svikamyllu sé að ræða, en auk þess að tapa peningum verður fólk fyrir talsverðum töfum og vandræðum, og slíku vill enginn lenda í meðan verið er í fríi, að því er segir á vef Neytendasamtakanna.
Athugasemdir:
Greitt með kreditkorti
Þegar greitt er með kreditkorti fyrir vöru og eða þjónustu sem afhenda á síðar og kemur í ljós að söluaðili verður ófær um að afhenda t.d. ef söluaðili hættir rekstri, getur korthafi hafnað greiðslu skriflega til kortaútgefanda síns í allt að 90 daga frá þeim degi er afhending átti að eiga sér stað og farið fram á endurgreiðslu.
Með því að greiða með kreditkorti fyrir þjónustu og eða vöru sem afhenda á síðar, ætti neytandinn því að vera nokkuð öruggur gegn fjárhagslegu tjóni.

Ég get staðfest þetta af eignin reynslu.
Í júni s.l.pöntuðum við hjónin hótelherbergi í Boston í gegn um þá með tveggja mánaða fyrirvara. Einum degi áður en við fórum til Boston kom tölvupóstur þar sem okkur var tjáð að bókunin hefði verið afturkölluð og þeir myndu greiða okkur til baka innan tveggja mánaða. Engar frekari skýringar voru gefnar. Ég sendi þeim póst til baka og bað um skýringar. Þeir svöruðu strax og sögðu að vegna vandamála við þriðja aðila hefði orðið að aflýsa bókuninni.
Rúmum mánuði seinna þegar við vorum komin heim reyndum við að reka á eftir endurgreiðslu en fengum engin svör. Að lokum höfðum við samband við VISA og kom þá endurgreiðslan strax.
Jóhann
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
mánudagur | þriðjudagur | miðvikudagur

Akureyri
V4 5°C

Kirkjubæjarkl.
V3 3°C

Bolungarvík
VSV5 4°C

Skráðu þig inn