Barðist við að ná flugi í Kína
„Ég hef aldrei upplifað önnur eins læti og þegar ég barðist við að komast í flugrútuna,“ sagði Guðmundur Pálsson, tónlistarkennari, sem kom heim í nótt frá Kína eftir langt og strangt ferðalag. Mikil snjókoma í Peking setti allt flug frá borginni á annan endann.
Þann 3. janúar, daginn sem Guðmundur átti bókað flug heim frá Peking, snjóaði gríðarlega mikið í Kína og allt flug fór úr skorðum á alþjóðaflugvellinum. Um tíma var aðeins ein af þremur flugbrautum á flugvellinum opin.
Guðmundur ætlaði að leggja af stað að flugvellinum kl. 10, en vélin átti að fara í loftið kl. 15:30. Hann áformaði upphaflega að taka leigubíl, en ekkert gekk að ná sambandi við leigubílastöðvar, væntanlega vegna þess að stór hluti borgarbúa ætlaði að nota leigubíla þennan dag. Starfsfólk hótelsins töldu ráðlegast fyrir Guðmund að taka neðanjarðarlestina. Guðmundur þekkti það kerfi ekki neitt, en ákvað samt að láta slag standa enda fékk hann góðar leiðbeiningar frá starfsmönnum hótelsins.
Í fyrstu gekk allt vel, en þegar hann kom á brautarpallinn til að taka síðustu lestina kom í ljós að búið var að aflýsa ferðum hennar vegna veðurs. Guðmundur ákvað þá að taka flugrútuna, en hún gekk á 15 mínútna fresti frá lestarstöðinni. Um 200 manns biðu eftir rútunni þegar hann kom að röðinni og umferðin var öll mjög hæg vegna ófærðar. Guðmundur sagði að mikil barátta hefði hafist þegar rúturnar komu. Allir voru í þeirri stöðu að vera að missa af flugi og takmarkaður fjöldi komst með hverri rútu.
Þegar Guðmundur komst loksins á flugvöllinn var tæplega klukkutími liðinn frá því að flugvélin átti að leggja af stað. Hann gerði sér hins vegar vonir um að brottför vélarinnar hefði verið seinkað vegna veðursins. Í ljós kom að þessi vél var ein fárra flugvéla sem lagði af stað á réttum tíma.
Guðmundur neyddist því til þess að taka aðra vél daginn eftir. Þá gekk allt eðlilega fyrir sig. Hann lenti í Keflavík um kl. 2 í nótt, en þá voru rúmlega 40 klukkutímar frá því hann lagði af stað frá hótelinu í Peking.
Athugasemdir:
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C













Skráðu þig inn