Stærsta ferðamannaárið frá upphafi
Alls heimsóttu um 566.000 ferðamenn Ísland í fyrra. Þetta er fjölgun á milli ára sem nemur 0,7%, en árið 2008 sóttu 562.000 ferðmenn Ísland heim. Að sögn Ferðamálastofu má gera ráð fyrir að um sé að ræða stærsta ferðamannaárið á Íslandi frá upphafi.
„Íslensk ferðaþjónusta má vel við una eftir árið 2009. Þrátt fyrir hnattræna kreppu og versnandi afkomu ferðaþjónustunnar í Evrópu, óx umfang íslenskrar ferðaþjónustu á síðasta ári. Þennan vöxt má ekki síst rekja til þess að erlendum ferðamönnum fjölgaði frá mörgum helstu mörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu skv. talningum Ferðamálastofu á brottförum um Leifsstöð. Heildarfjöldi ferðamanna að meðtöldum farþegum skemmtiferðaskipa var árið 2009 0,7% meiri en árið 2008, eða 566 þúsund miðað við 562 þúsund og því má gera ráð fyrir að um sé að ræða stærsta ferðamannaárið á Íslandi frá upphafi,“ segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu.
Langflestir erlendra gesta, eða 94%, fóru um Keflavíkurflugvöll, 2,8% um Reykjavíkurflugvöll, 2,8% með Norrænu um Seyðisfjörð og 0,3% um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll. Skiptinguna má sjá í töflunni hér fyrir neðan. Farþegar til Íslands með skemmtiferðaskipum voru tæplega 72 þúsund á árinu 2009, 16% fleiri en árinu áður.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ferðamálastofu.
Athugasemdir:
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C









Skráðu þig inn