Winnipeg slær í gegn
Á Þorláksmessu tilkynnti Iceland Express að Winnipeg yrði nýr áfangastaður félagsins næsta sumar. Matthías segir að viðbrögðin hafi ekki látið á sér standa og kanadískar ferðaskrifstofur hafi þegar gert samninga um farseðlakaup.
Félagið hafi gert svipaða samninga vegna annarra áfangastaða en segja megi að salan á ferðunum til og frá Winnipeg hafi slegið í gegn. „Hún er langt fram úr björtustu vonum,“ segir hann. Matthías bætir við, að þó málið hafi verið skoðað vel áður en ákvörðun um flug hafi verið tekin, hafi verið rennt nokkuð blint í sjóinn, en salan hafi farið ótrúlega vel af stað og áhuginn á fluginu leyni sér ekki.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
Athugasemdir:
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C













Skráðu þig inn