Ferðaþjónar á flugi

eftir Helga Bjarnason

helgi@mbl.is

Lækkun gengis krónunnar hefur skapað ferðaþjónustunni betri skilyrði, eins og öðrum útflutningsgreinum. Fyrirtækin hafa nýtt það og unnið ákveðinn varnarsigur með því að ná í heldur fleira ferðafólk en árið á undan, þrátt fyrir minnkandi ferðalög milli landa vegna heimskreppunnar.

Víða eru sóknarfæri í ferðaþjónustunni. „Tækifærin núna liggja í því hvað krónan hefur lækkað. Fólk áttar sig á því að það hefur nú frekar efni á því að fara til Íslands. Það er að vísu ekki ódýrt og hefur aldrei verið það,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Umtalsverð aukning hefur orðið á útgjöldum erlendra gesta hér á landi, ekki síst í verslunum. Erna segir það ekki koma á óvart og nefnir að helmingi ódýrara sé fyrir gesti af evrusvæðinu að borða á veitingastað hér en var þegar gengið var sem hæst.

Byggja upp áfangastaði

Í sumar var mikið að gera í móttöku ferðafólks úti á landi og gisting víða uppseld á vinsælustu stöðunum. Íslendingar ferðuðust mikið um landið í sumar og bættust í hóp erlenda ferðafólksins sem ávallt fer mikið um landið.

„Sóknarfærin liggja í því að byggja upp áfangastaði og sjá til þess að þjónustan sem er veitt sé þess virði að kaupa hana,“ segir Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála. Hann segir að víða vanti þjónustu sem standi undir nafni. Með því að veita góða þjónustu séu tækifærin óþrjótandi. „Gestirnir munu þá ferðast víðar um landið og dvelja lengur á hverjum stað. Þegar þeir finna áhugaverðan stað til að skoða þurfa þeir að borða einhvers staðar og gista, þannig að þetta helst allt í hendur,“ segir Edward.

Þarf gulrót yfir veturinn

Áhersla hefur lengi verið lögð á að lengja ferðamannatímann. Upplýsingar Ferðamálastofu sýna að sú viðleitni hefur ekki borið árangur á liðnu ári. Fjölgunin er fyrst og fremst í júlí og ágúst.

Aðstaða er því fyrir hendi til að taka við fleira fólki vor og haust og yfir vetrarmánuðina og er mikilvægt fyrir fyrirtækin að unnið sé að því. Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Nordic Visitor, segir að fyrirtæki í ferðaþjónustu eigi að líta á það sem tækifæri að fá ferðafólk yfir veturinn. Það þurfi gulrót til að fá fólkið á þeim tíma og veita þurfi umtalsverðan afslátt. Nefnir hann að hótel úti á landi gætu fengið fleiri gesti með því að veita góðan afslátt en eigi möguleika á að fá í staðinn tekjur af aukinni veitingasölu og afþreyingu.

Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Icelandair, segir að menn verði að vera meira skapandi til að fá ferðafólk yfir veturinn. Nefnir hátíðirnar Food & Fund og Iceland Airwaves sem góð dæmi um það en báðar eru hluti af menningarferðaþjónustu.

Slegið á strengi Hörpunnar

Nýting gistirýmis mætti vera mun betri í Reykjavík. Stafar það meðal annars af því að ráðstefnuhald hefur minnkað hér, eins og annars staðar í heiminum, vegna efnahagserfiðleikanna.

Þegar efnahagslíf heimsins nær sér á strik á ný skapast aftur sóknarfæri á því sviði. Því til viðbótar má nefna tónlistar- og ráðstefnumiðstöðina Hörpu við Reykjavíkurhöfn sem mun stórbæta aðstöðuna. Stefnt hefur verið að opnun hennar vorið 2011 en vegna óvissu um framvindu verksins hefur lítið verið hægt að vinna að markaðssetningu.

Ráðstefnugestir eru taldir góðir gestir sem skilja mikið eftir sig í landinu og því felast mikil sóknarfæri í Hörpu.

Vel bókað

Bjartsýni er ríkjandi í ferðaþjónustunni og reiknað með aukningu í ár. „Það var á brattann að sækja í fyrra. Þó var Ísland eitt fárra ríkja Evrópu þar sem ekki varð samdráttur í ferðaþjónustunni,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.

Rannsóknir sýna að fólk sækir Ísland heim vegna náttúrunnar en víðar eru tækifæri. Töluverð uppbygging hefur verið í heilsu- og menningarferðaþjónustu eins og Bláa lónið og Jarðböðin í Mývatnssveit eru til vitnis um sem og fjölbreytt setur og sýningar um allt land.

„Tækifærin liggja í því að bjóða gæðaferðaþjónustu fyrir þá markhópa sem telja sig meðvitaða um umhverfið og vilja ævintýri og upplifun. Ísland hefur áru skemmtilegheita og upplifunar, við þurfum að hamra það járn áfram,“ segir ferðamálastjóri.

Flugfélögin hafa aukið sætaframboð fyrir þetta ár og gera ráð fyrir aukningu, bæði til Íslands og yfir Atlantshafið. Helgi Már Björgvinsson hjá Icelandair segir að félagið geri ráð fyrir tæplega 10% fjölgun ferðafólks til Íslands. Bókunarstaðan er að hans sögn betri en á sama tíma í fyrra, munar 20% í ferðum til Íslands.

Skilar sér til baka

Niðurskurður á ríkisútgjöldum bitnar á ferðaþjónustunni, eins og öðru. Erna Hauksdóttir segir að fyrirtækin setji mikið fé í markaðssetningu og ýmislegt sé verið að gera en gott hefði verið að fá ríkið til að leggja meira til. „Hver króna sem varið er til markaðsmála í ferðaþjónustu skilar sér margföld til baka.“

Ferðafólki fjölgaði í raun

OPINBERAR tölur sem sýna að komum erlendra gesta fækkaði á síðasti ári um 1,7% segja ekki alla söguna um komur ferðafólks. Vísbendingar eru um að ferðamannastraumurinn hafi heldur aukist og umfang ferðaþjónustunnar hefur í öllu falli aukist umtalsvert.

Talningar Ferðamálastofu á brottförum erlendra gesta sýna að tæplega 494 þúsund gestir komu til landsins á nýliðnu ári. Er það liðlega átta þúsund færra en á árinu 2008. Tilgangur farar innan EES er ekki kannaður þannig að inni í þessum tölum eru einnig erlendir verkamenn. Þeim hefur fækkað verulega milli ára og mun meira en nemur fækkun í heildartölunni.

Í sömu átt benda tölur um farþega frá helstu markaðssvæðum. Aukning hefur orðið á þeim öllum, nema frá Bretlandi. Þannig fjölgaði umtalsvert gestum frá Mið- og Suður-Evrópu og Norður-Ameríku og lítilsháttar frá Norðurlöndunum.

Þar fyrir utan eru gestir erlendra skemmtiferðaskipa sem ekki teljast ferðamenn, samkvæmt þessari skilgreiningu þar sem þeir gista ekki yfir nótt í landinu. Þeir voru 72 þúsund á árinu 2009 og fjölgaði um 16%.

Því er ljóst að umfang ferðaþjónustunnar hefur í raun aukist talsvert, þrátt fyrir að opinberar tölur bendi til annars við fyrstu sýn.

Ferðafólk í kjölfar kvikmynda

TVÆR indverskar kvikmyndir, svonefndar Bollywood-myndir, hafa verið teknar upp hér á landi að hluta til. Vonast er til að sýning þeirra í heimalandinu verði til þess að hingað komi fleiri indverskir ferðamenn.

Heimild er í lögum til að endurgreiða erlendum kvikmyndaframleiðendum allt að 20% kostnaðar sem til fellur hér á landi. Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður Fjárfestingarstofu Íslands, segir að nokkur verkefni séu í undirbúningi sem gætu komið til framkvæmda í vor og frameftir hausti.

Rökin fyrir þessum endurgreiðslum voru á sínum tíma að auka þekkingu á kvikmyndagerð hér á landi og að endurgreiðslurnar skiluðu sér til baka í auknum tekjum hér innanlands.

Fjárfestingarstofa hefur lagt sérstaka rækt við að fá kvikmyndaverkefni frá Indlandi og hafa tvær myndir verið teknar upp hér að hluta. Þórður segir að þótt þeim fylgi ekki mikil umsvif sýni reynslan frá öðrum löndum, til dæmis Sviss sem oft sést í Bollywood-kvikmyndum, að indverskum ferðamönnum fjölgi stórlega þegar farið er að sýna myndirnar. Vonast er til að það sama gerist hér.

Leikið á söguslóðum

GESTIR á söguslóðum geta átt von á að hitta sögupersónur augliti til auglitis. Samtök um sögutengda ferðaþjónustu leggja áherslu á að auka afþreyingu á sögustöðunum.

Í samvinnu við leikhópa á stöðunum verður boðið upp á leikþætti um söguna, frá fimmtán mínútum upp í klukkutíma. Fyrir liggur að leikrit sem byggist á sögu Húsavíkur verður sýnt á Gamla Bauk í sumar og fleiri verkefni eru í athugun.

Reiðhjólaleigan orðin alþjóðleg ferðaskrifstofa

LITLA upplýsingamiðstöðin við Lækjartorg sem leigði út reiðhjól og veitti ferðafólki netaðgang er orðin að alvöru ferðaskrifstofu sem selur allskyns ferðir til Íslands og allra Norðurlandaþjóðanna. Þar eru nú þrjátíu starfsmenn á Íslandi, í Osló og Stokkhólmi, en engin reiðhjól lengur til að leigja.

Mörg ný fyrirtæki spretta upp í ferðaþjónustunni og margir sem vilja spreyta sig þar. Það fylgir fréttum um velgengni atvinnugreinar. Iceland Visitor, nú Nordic Visitor, er dæmi um fyrirtæki í miklum vexti.

Salan hjá Nordic Visitor tvöfaldaðist á síðasta ári og enn meiri aukning varð á sölu ferða til Íslands.

Ásberg Jónsson framkvæmdastjóri sér fram á áframhaldandi aukningu á þessu ári í kjölfar þess að fyrirtækið hefur sett upp nýjan söluvef og er að þróa nýjar ferðir í tengslum við hann.

Meðal viðskiptavina eru einstaklingar með meðaltekjur og þar yfir sem vilja fá aðstoð við skipulagningu ferða og eru ýmist einir á ferð í bílaleigubílum eða skipulögðum hópferðum. „Fólk á evrusvæðinu og syðri hluta Evrópu sem áður fór í ódýrustu ferðirnar er allt í einu farið að hafa efni á því að gera vel við sig. Það kaupir dýrari ferðir og gerir ekki athugasemdir við verðið,“ segir Ásberg. Þá hefur fyrirtækið mikil viðskipti við fyrirtæki vegna skipulagningar hvataferða fyrir starfsmenn.

„Ég kvarta ekki yfir ástandinu. Umhverfið er hagstætt. Ég fæ gott starfsfólk til mín og gengið skemmir ekki fyrir,“ segir Ásberg.

Á morgun

Annar hluti greinaflokks um sóknarfæri í íslensku atvinnulífi fjallar um stöðu stórra jafnt sem smærri verkefna í iðnaði, ný tækifæri og möguleika á orkuöflun.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
10.2. Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
10.2. Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit