Flugumferð dróst saman um 8% milli ára

Vél Flugfélags Íslands flýgur yfir Öskjuhlíðina

Vél Flugfélags Íslands flýgur yfir Öskjuhlíðina mbl.is/Ómar

Í þriðja skiptið á jafnmörgum árum fór fjöldi flugvéla um íslenska flugstjórnarsvæðið yfir 100 þúsund markið, heildarfjöldinn á síðasta ári var 101.504 þúsund flugvélar. Ef miðað er við árið 2008 þá dróst flugumferð saman um 8% en þá fóru 110.366 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið og höfðu aldrei orðið fleiri.

Að meðaltali 278 flugvélar á dag

Um 24.4 % flugumferðarinnar voru flugvélar í flugi til eða frá Íslandi en árið 2008 var þessi tala 27,8%. Að meðaltali komu 278 flugvélar á dag inn á svæðið.

Flugumferðin var mest í ágúst eða tæplega 12 þúsund flugvélar. Eins og búast mátti við voru flugvélar Icelandair tíðustu gestirnir inn á svæðinu, sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð. Því næst komu í réttri röð þýska félagið Lufthansa, British Airways, United Airlines og Delta Airlines,  að því er segir í tilkynningu frá Flugstoðum.

Flugleiðin á milli London - Los Angeles var sú flugleið sem var oftast flogin inn á flugstjórnarsvæðinu, því næst London - San Francisco og þriðja algengasta flugleiðin var frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur.

Boeing flugvélar komu oftast inn á íslenska flugstjórnarsvæðið á síðasta ári og voru í þremur efstu sætunum, flestar voru Boeing 777-200, í öðru sæti Boeing 767-300 og í þriðja sæti var Boeing 757-200, að því er segir í tilkynningu frá Flugstoðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
10.2. Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
10.2. Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit