Erlendum ferðamönnum fækkaði í janúar
mbl.is
Tæplega 19 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Leifsstöð í janúarmánuði síðastliðnum, 1200 færri en í janúar árið 2009. Erlendum gestum í janúar fækkaði því um 6% milli ára.
Fleiri Íslendingar fóru hins vegar utan í janúar í ár en í fyrra, að sögn Ferðamálastofu. Þeir voru 18.500 árið 2009 en tæplega 20 þúsund í nýliðnum mánuði, sem er fjölgun um 7,5%.
Ferðamálastofa segir, að breskum gestum hér hafi fjölgað um tæp 12% og hafi þeir aldrei verið fleiri í janúarmánuði. Í heild sé fækkun frá öðrum markaðssvæðum þótt fjölgun sé frá einstökum löndum, t.d. Hollandi og Kanada og Kína.
Erlendum gestum til landsins hefur fjölgað um 48% í janúar frá árinu 2003 til ársins 2010. Árleg meðalaukning á tímabilinu hefur verið 7,1%. Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir gesta frá landinu um Leifsstöð.
Athugasemdir:
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C









Skráðu þig inn