Efnahagshrun eykur áhuga

Ferðakaupstefnan Mid-Atlantic var vel sótt í gær. stækka

Ferðakaupstefnan Mid-Atlantic var vel sótt í gær.

Morgunblaðið Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is
„Í landkynningu gildir að umfjöllun, jafnvel þótt neikvæð kunni að vera, sé betri en engin. Áhugi erlendis á Íslandi í dag er mikill, meðal annars vegna mikillar umfjöllunar fjölmiðla ytra um erfiðleika okkar í efnahagsmálum. Það virðist samt ekki hafa áhrif á ímyndina, áhugi fólks í ferðaþjónustu á landinu hefur sjaldan verið meiri,“ segir Steinn Lárusson, sem stýrir ferðakaupstefnunni Mid-Atlantic sem hófst í Laugardalshöll í gær.

Um 350 fulltrúar koma á ráðstefnuna frá útlöndum, þar af um 150 kaupendur ferðaþjónustu frá Bandaríkjunum og Kanada. Þeir sem taka þátt í kaupstefnunni eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleigna, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja – og að auki taka þátt ferðamálaráð á Norðurlöndum og þeim svæðum og borgum sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku.

Miklar framfarir

Icelandir stendur að kaupstefnunni, sem nú er haldin í 18. sinn. „Framfarirnar í ferðaþjónstunni eru miklar, sérstaklega afþreyingarþátturinn. Þar er fjölbreytnin mikil, til dæmis jeppaferðir í ýmsum útfærslum, jöklaleiðangrar og jaðarsport ýmiskonar. Þá er verið að þróa sífellt nýja möguleika til dæmis í gönguferðum. Og þetta skilar sér í því að ferðamönnum sem hingað koma að utan fjölgar jafnt og þétt, þótt ýmsir áhrifaþættir aðrir spili líka inn í, svo sem hagstætt gengi krónunnar og umfjöllun erlendra miðla um land og þjóð,“ segir Steinn.

Eftirtekjan líklega drjúg

Steinn bætir við að afrakstur kaupstefnu, eins og þeirrar sem nú stendur yfir, sé fyrst og fremst sá að kaupendur og seljendur þjónustu beri saman bækur sínar undir þeim formerkjum að maður sé manns gaman. Nú sé sölu á ferðum fyrir sumarið 2010 að mestu lokið og því komi eftirtekjan ekki strax í ljós, en verði að líkindum drjúg þegar upp er staðið.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
10.2. Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
10.2. Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira
Flughræddir ættu ekki horfa

Flughræddir ættu ekki horfa

Myndband af flugvélum dansa í vindhviðum við flugvöllinn í Dusseldorf.   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit