Mælir með vetrarferð um hringveginn
Jökulsárlón var einn af mörgum stöðum sem Chris Heath hreifst af þegar hann ók hringinn í nóvember. mbl.is/Ómar
Blaðamaður breska blaðsins Sunday Telegraph skrifar langa grein um Ísland í blað sitt í dag þar sem hann lýsir ökuferð hringinn í kringum landið í vetur. Segist blaðamaðurinn, Chris Heath, mæla eindregið með slíkri ferð og á tíðum hafi honum fundist að hann sæti einn að þessu skrítna og hrjóstruga landi.
Heath segir að norðurljósin hafi ekki látið sjá sig í ferðinni en honum sé sama.
„Vanti eitthvað í þessa ferðasögu þá er það að á milli þeirra stórkostlegu staða sem ég hef lýst varð ég vitni að hrífandi og nánst óraunverulegri fegurð. Ef þú ert sú manngerð, að þér leiðast endalausir fossar (eins og Auden gerði) eða sérð ekki fegurð í því hvernig hraun hefur runnið yfir landið með ýmsum hætti eða óar við tilhugsunina um malarvegi, þá er þetta sennilega ekki ferðalag sem hentar þér. En að öðrum kosti mæli ég eindregið með því," segir Heath.
Athugasemdir:
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C









Skráðu þig inn